• Stefán og Tarik eru óaðskiljanlegir
    Stefán og Tarik eru óaðskiljanlegir

Stefán konungur

21.8.2009

Stefán er ellefu ára. Hann er rólegur en iðjusamur drengur með góðan stökkkraft og ótrúlega hitni. Hann býr í SOS-barnaþorpi og dreymir um að verða körfuboltastjarna.

Stefán kynntist körfubolta fyrst þegar hann fluttist í SOS-barnaþorpið í Sarajevo í Bosníu Hersegóvínu fyrir nokkrum árum. Hann og eldri SOS-bróðir hans Tarik náðu strax vel saman og í dag eru þeir óaðskiljanlegir. Tarik smitaði Stefán af körfuboltaáhuga.

Æfir mikið

Báðir æfa þeir körfubolta með félagsliði staðarins og hafa gaman af. „Við mætum á æfingar fjórum sinnum í viku,“ útskýrir Stefán. „Til að byrja með fannst mér það mikið en núna vildi ég æfa á hverjum degi.“ Hann og Tarik bæta það þó upp með því að spila körfu í SOS-barnaþorpinu, en þar er körfuboltavöllur.

Námið er ekkert mál

Stefán ásamt SOS-móður sinniStefán lauk fjórða bekk sl. vor með góðum einkunnum. „Mér finnst gaman í skólanum og að læra mismunandi hluti. Ég reyni að taka vel eftir í tímum svo ég þurfi ekki að læra eins mikið þegar ég kem heim.“ SOS-móðir Stefáns staðfestir þetta: „Öll börnin mín eru dugleg í skólanum en Stefán sker sig úr að því leyti að hann hefur gaman af því að læra,“ segir hún.

Stefáni gengur best í stærðfræði. „Kannski er það vegna þess að ég hef gaman af að telja þriggja stiga körfur,“ segir hann og hlær. „Sérstaklega hjá Kónginum.“ Uppáhaldsleikmaður Stefáns er LeBron „King“ James hjá Cleveland Cavaliers. Drengurinn er gjörsamlega heillaður af körfubolta og „Kónginum“ og hann á þann draum heitastan að fá að hitta stjörnuna og taka nokkur skot á körfuna með honum.

Aðaláhugamál Stefáns er körfubolti

Dreymir um NBA

Stefán viðurkennir að hann dreymi um að spila í NBA deildinni. „Þar er besti körfuboltinn leikinn,“ segir stráksi. „Það er líka margt gott við evrópskan körfubolta en NBA er miklu meira spennandi. Þar er spenna frá upphafi til enda. Ég yrði hamingjusamasti maður í heimi ef ég fengi að spila í NBA.“

Stefnir á háskólanám

En Stefán á fleiri drauma. Hann dreymir um að komast í háskóla. „Ég ætla að úrskrifast úr háskóla,“ segir hann ákveðinn. Þegar Stefán er minntur á að margir góðir körfuboltamenn, t.d. LeBron „King“ James, sleppi háskólanámi fyrir frama í íþróttinni segir Stefán: „Ég læri bara eitthvað sem ég er mjög góður í, t.d. stærðfræði, svo ég geti bæði stundað námið og körfuboltann. Mamma segir að ef ég standi mig áfram svona vel þá geti ég það og hún hefur alltaf rétt fyrir sér,“ segir Stefán, framtíðarkonungur körfuboltans.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica