Bréf frá fyrrum SOS-barni
Eftirfarandi bréf er frá Refilwe Motlhanka sem bjó í SOS-barnaþorpi í Botsvana sem barn og unglingur. Hún er ein af þeim sem verið hafa í vonlausum aðstæðum en fengið tækifæri - og nýtt sér það.
---
Ég fluttist í SOS-barnaþorpið í Tlokweng í Botsvana árið 1992, þá níu ára gömul. Ég og systkini mín fjögur ólumst saman upp ásamt sjö öðrum börnum í umsjá SOS-móður okkar. Það sem við tvíburasysturnar komum úr mjög erfiðum aðstæðum og vorum fæddar af einstæðir atvinnulausri móður vorum við staðráðnar í að nýta það tækifæri sem SOS-barnaþorpin færðu okkur til hins ýtrasta.
Þegar við útskrifuðumst úr barnaskóla voru einkunnirnar ekki nógu góðar til að veita okkur aðgang að framhaldsskóla. Sú staðreynd dró þó ekki úr okkur og við urðum enn ákveðnari að nýta þau tækifæri sem SOS-barnaþorpin höfðu fært okkur.
Árið 1999 fengum við, ásamt nokkrum öðrum SOS-börnum, að sækja diplómanám í hótel- og veitingaskóla í Windhoek í Namibíu. Að námi loknu vann ég hjá nokkrum hótelum í Botsvana áður en ég svo fékk styrk frá ferðamannaráði Botsvana til að fara til Disney world í Bandaríkjunum og starfa þar sem fulltrúi Afríku. Í Bandaríkjunum öðlaðist ég mikla reynslu og með stuðningi og hvatningu SOS lærði ég og upplifði mun meira en til stóð í upphafi.
Þegar starfssamningi mínum í Disney world lauk árið 2004 flutti ég til Bretlands þar sem ég starfaði fyrir nokkur fyrirtæki áður en ég svo flutti aftur til Botsvana árið 2007. Sú reynsla sem ég hafði orðið mér úti um tryggði mér strax starf hjá Stanbic bankanum þar sem ég starfa enn.
Hjá SOS-barnaþorpunum lærði ég að gefast aldrei upp og stefna ótrauð að markinu. Ég ákvað að hafa gaman af lífinu og ég þreytist ekki á því að segja fólki að láta drauma sína rætast og líta aldrei á sig sem fórnarlömb.
Refilwe Motlhanka

