• Naomi selur veitingar á markaðstorginu
    Naomi selur veitingar á markaðstorginu

Fjölskyldan í fyrsta sæti

12.6.2009

Naomi er fimm barna móðir í Bólivíu. Fjölskyldan hefur gengið í gegnum mikla erfiðleika vegna fátæktar og drykkju eiginmannsins en lítur nú framtíðina björtum augum.

Fjölskyldan býr í hverfi efnalítils fólks í úthverfi Oruro. Eiginmaður Naomi var í mikilli drykkju og þrátt fyrir fjárhagslega erfiðleika notaði hann það litla sem þau áttu til kaupa á áfengi. Hann gekk reyndar lengra og seldi þá fáu verðmætu hluti sem fjölskyldan átti.

Eftir að hafa safnað í sig kjarki leitaði Naomi til samfélagsmiðstöðvar SOS í Oruro og bað um að samtökin sæju um börnin á daginn á meðan hún aflaði heimilinu tekna með því að þvo þvott. Fljótlega féllst eiginmaður hennar á að koma með henni á fund fyrir hjón sem samfélagsmiðstöðin stóð fyrir. Þar ræddi sálfræðingur við þau saman og í sitthvoru lagi. Nokkrum vikum síðar féllst eiginmaðurinn á að fara í meðferð og var í henni í átta mánuði.

Naomi hamingjusöm meðÁ meðan eiginmaðurinn var í afvötnun sá Naomi fyrir sér og börnunum fimm með fataþvotti. Það gekk ekki betur en svo að rafmagnið og vatnið var tekið af þeim vegna skulda og til að bæta gráu ofan á svart varð Naomi veik og gat aðeins unnið takmarkað í heilan mánuð. Til að afla heimilinu aukatekna vann elsti sonur þeirra hjóna fyrir sér sem trúður auk þess sem ein dóttirin passaði börn. Allar tekjur heimilisins fóru í að greiða meðferðarstofnuninni, skólaföt fyrir börnin og borga skuldir.

Þegar hér var komið sögu fékk Naomi aukastuðning frá SOS. Hún sótti námskeið í rekstri lítilla fyrirtækja og fékk lán frá samfélagsmiðstöðinni til að opna litla veitingasölu á markaðstorgi einu. Tekjur fjölskyldunnar hafa aukist til muna og aftur er komið rafmagn og vatn á litla heimilinu hennar. Einnig hefur hún keypt teppi, dýnur og fleira fyrir börnin sín.

Eiginmaðurinn hefur staðið sig vel eftir meðferðina og hefur lært að meta eiginkonu og börn sín betur en áður. Fjölskyldan er loksins komin aftur í fyrsta sæti. Hann er menntaður í múrsteinahleðslu og hefur nóg að gera í því eftir að hann hætti að drekka. Hann er þakklátur fyrir þá hjálp sem SOS-samfélagsmiðstöðin í Oruro veitti fjölskyldunni, því án þeirrar hjálpar er óvíst hvernig farið hefði fyrir þessari fjölskyldu.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica