• tpa-picture-38608
    Börn á leikskólanum í Makeni

Hættur að slást

5.6.2009

Mustafa er sex ára. Honum gekk ekki vel að aðlagast lífinu í SOS-barnaþorpinu í Makeni í Síerra-Leóne þegar hann kom þangað árið 2007.

Börnum sem flytjast í SOS-barnaþorp gengur misvel að aðlagast nýjum aðstæðum. Nýtt umhverfi og reglur, misgóðar minningar úr fortíðinni og fullt af nýju fólki. Þetta eru hins vegar áskoranir sem SOS-mæður eru þjálfaðar í að takast á við. Mustafa var fimm ára þegar hann kom fyrst í barnaþorpið og átti við mikla hegðunarerfiðleika að stríða. Líklega má skýra hegðun hans sem viðleitni til að verja sjálfan sig, þar sem hann vissi ekki hverjum hann gæti treyst og hverjum ekki.

„Fyrstu tvo dagana í þorpinu tjáði Mustafa okkur skýrt og skilmerkilega að hann myndi flýja úr barnaþorpinu og fara á sinn gamla stað“, segir Santigie Kaloko forstöðumaður þorpsins.

Fyrstu tvær vikurnar lenti Mustafa ítrekað í slagsmálum við SOS-systkini sín ef þeim varð það á að angra hann. „Ég var alltaf að fá fréttir af því að hann hefði lamið einhvern. Hann tók ekkert mark á mér og gekk bara í burtu þegar ég sagði honum að hegða sér vel“, rifjar SOS-móðir hans upp.

Kvartanirnar streymdu inn og forstöðumaðurinn ákvað að bjóða Mustafa á heimili sitt þar sem þeir myndu ræða málin. Mustafa fékk góða ráðgjöf þennan dag og daginn eftir var hann látinn „starfa“ á skrifstofu barnaþorpsins þar sem hann fékk enn fleiri góð ráð frá aðstoðarmanni forstöðumannsins.

Í lok dags var Mustafa sáttur við dvöl sína á skrifstofunni. Honum fannst sérstaklega gaman að kynnast því hvernig tölva virkar. Segja má að hann hafi tekið ástfóstri við skrifstofuna og hann fór að biðja um leyfi hjá móður sinni til að fara á skrifstofuna eftir skóla. „Ég sagði honum að leggja sig fyrst og um leið og hann vaknaði var hann rokinn út á skrifstofu til að „hjálpa“ ritaranum þar“, segir móðir hans.

Á fjórðu viku fóru móðir hans og forstöðumaðurinn að sjá jákvæðar breytingar því önnur börn voru hætt að kvarta undan honum.

„Í dag er Mustafa til friðs, hann leikur fallega við systkini sín og virðir móður sína“, staðfestir forstöðumaðurinn.

Mústafa sjálfur hefur þetta að segja: „Ég vil vera góður við alla og duglegur að læra í skólanum. Núna finnst mér gott að búa í SOS-barnaþorpinu og langar að vaxa hér úr grasi“.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica