• Allie með viðskiptavin á hjólinu
    Allie með viðskiptavin á hjólinu

Mótorhjólið er málið!

28.4.2008

Allie gekk inní mótorhjólabúðina með fulla vasa fjár. Leitun var að hamingjusamari manni á því augnabliki. Þessi 28 ára gamli maður frá Sierra Leone og fyrrum SOS-barn hefur lagt mikið á sig til að verða sjálfstæður og ná markmiðum sínum.

Sem SOS-barn fékk hann uppeldi sem miðaði að því að gera hann sjálfstæðan. Það uppeldi hefur reynst Allie vel þar sem sjálfstæðið kom ekki að sjálfu sér og hann þurfti að leggja mikið á sig til að ná markmiðum sínum.

Allie bjó tvö ár í Banjul í Gambíu þar sem hann lærði bifvélavirkjun í verknámsskóla SOS-barnaþorpanna. Hann lauk námi árið 2003 og snéri þá heim til Sierra Leone og bjó með ættingjum sínum.

Allie hóf að leita sér að vinnu og sótti um hér og þar, án árangurs. En hann var staðráðinn í að verða fjárhagslega sjálfstæður og gafst því ekki upp. „Þar sem ég fékk ekki vinnu strax, ákvað ég að ráða mig sem lærling á bifreiðaverkstæði fyrir sáralítil laun. Þrátt fyrir lág laun fannst mér gaman að gera við bíla og naut mín því í starfinu.“

En baráttuviljinn var enn til staðar og Allie ætlaði sér að verða fjárhagslega sjálfstæður. Dag einn frétti hann af mótorhjólaeiganda sem gerði hjólið sitt út sem taxa (okada) og vantaði einhvern til að keyra það fyrir sig.

Allie gat skilað inn góðum meðmælum og fékk starfið. „Ég vildi sanna fyrir nýja vinnuveitanda mínum að hann gæti treyst mér. Ég borgaði honum fasta upphæð á dag og ef innkoma dagsins var hærri hélt ég mismuninum eftir. Þetta gekk vel og árið 2006 hafði ég náð að safna mér 600.000 Leone (um 15.000 krónum).“

Fyrir þessa fjármuni gat Allie leigt sér hús og keypt húsgögn. „Það var gott að geta leigt og búið einn. Skynsemi í fjármálum gerði mér gott. Ég gat meira að segja sent fjölskyldu minni pening í hverjum mánuði svo börnin gætu sótt skóla.“

Á meðal viðskiptavina Allie var starfsfólk SOS-barnaþorpsins og grunnskólans í Bo. „Stundum hringdu þau í mig þegar þau vantaði far í bæinn og þá mætti ég á mótorhjólinu. Ég kom alltaf eins fljótt og ég gat og þau gátu alltaf reitt sig á þjónustuna.“

Framkvæmdastjóri SOS í Sierra Leone er sjálfur fyrrum SOS-barnSögur af góðri þjónustu og áreiðanleika Allie spurðust út og Olatungie Woode framkvæmdastjóri SOS-barnaþorpanna í Sierra Leone ákvað að lána honum pening svo hann gæti keypt sitt eigið mótorhjól (okada).

Allie er ákveðinn í að borga upp lánið á átta mánuðum. „Ég mun hvorki bregðast trausti framkvæmdastjórans né annarra sem sýnt hafa mér traust.“

Og ráð Allie til annarra fyrrum SOS-barna sem eru að hefja sjálfstætt líf: „Ekki gefast upp þrátt fyrir að ykkur mæti mótlæti. Einsetið ykkur að verða fjárhagslega sjálfstæð og hvikið hvergi frá því markmiði ykkar.“






Þetta vefsvæði byggir á Eplica