• Stellia og móðir hennar bíða eftir
    Stellia og móðir hennar bíða eftir "kraftaverkastólnum" (ljósm. Victor Musowa)

Stellia fær kraftaverkastól

4.6.2012

Stellia er níu ára hreyfihömluð stúlka sem býr í Malaví. Saga hennar er í senn sorgleg og ánægjuleg en móðir hennar neitaði að gefast upp þegar samfélagið hafnaði þeim mæðgum og fékk loks viðeigandi meðferð fyrir dóttur sína.

Mæðgurnar búa í þorpi í um 40 km. frá SOS Barnaþorpinu í Blantyre í Malaví. Erfiðleikar við fæðingu urðu til þess að Stellia fékk ekki nægilegt súrefni. Hún grét því ekki eins og önnur börn þegar hún kom í heiminn.

Vanþekking

Þetta var fyrsta barn móðurinnar og konan sem aðstoðaði hana við fæðinguna hafði ekki næga þekkingu svo hvorug þeirra gerði sér grein fyrir því að eitthvað var að. Móðirin fékk því engin ráð eða aðstoð vegna ástands nýfæddu dótturinnar – og dagarnir og mánuðirnir liðu.

Þegar Stellia hafði náð eins árs aldri gerði móðir hennar sér grein fyrir því að þroski hennar var ekki eðlilegur enda var hún langt á eftir jafnöldrum sínum að mörgu leyti. Móðirin fór því að spyrja fólk ráða og leitaði m.a. til heilsugæslunnar í þorpinu þar sem hún fékk þær upplýsingar að Stellia væri löt og myndi þroskast aðeins öðruvísi en önnur börn.

map-malawi-enÁ tveggja ára afmælisdaginn hafði Stellia ekki enn sýnt framfarir. Móðir hennar varð mjög áhyggjufull og í heil fimm ár gekk hún á milli töfralækna, en ekkert breyttist. Stellia gat hvorki staðið né setið án stuðnings og því lá hún allan daginn.

Höfnun

Móðir Stelliu var hætt að geta haldið á henni eins og áður og neyddist því til að skilja hana eftir heima í kofanum á meðan hún sjálf vann á akrinum. Einu sinni gekk hún reyndar með Stelliu á bakinu í þrjá tíma til að hitta andalækni sem sagði að Stellia væri andsetin líkt og nokkrir töfralæknar höfðu áður haldið fram.

Ekki dró svo úr erfiðleikum mæðgnanna þegar sveitungar þeirra höfnuðu þeim og bönnuðu þeim að taka þátt í viðburðum samfélagsins. Fólkið taldi að ástand Stelliu væri smitandi og vildi koma í veg fyrir að önnur börn yrðu einnig andsetin.

Dag einn þegar móðirin var á leið heim frá andalækninum hitti hún konu sem sagði henni frá heilsugæslu og endurhæfingarstöð SOS Barnaþorpanna í Blantyre. Þar gæti hún fengið „kraftaverkastól“  fyrir dóttur sína sem hún gæti setið í án þess að höfuðið rynni til hliðar.

Ferðin sem breytti öllu

Viku síðar batt móðirin Stelliu á bak sitt og gekk með hana til Blantyre en gangan tekur nokkra klukkutíma. Við komuna þangað fékk hún hlýlegar móttökur starfsfólks heilsugæslu SOS sem skoðaði Stelliu og tjáði móður hennar að stúlkan væri með heilalömun (cerebral palsy) sem orsakaðist af súrefnisskorti við fæðingu.

Móðirin fékk nú, níu árum eftir fæðinguna, loks að vita hvernig stæði á hreyfi- og þroskahömlun dótturinnar. Strax sama dag tók hún þátt í stuðningshópi þar sem hún fékk ýmsar upplýsingar um ástand Stelliu og við það létti henni stórum. Í framhaldinu fór Stellia svo í nánari læknisskoðun og fékk m.a. meðferð við krónískum hósta.

Við lok dags spurði móðirin starfsfólk heilsugæslunnar hvort þau ættu kraftaverkastól fyrir dóttur sína. Hún útskýrði að henni hefði verið tjáð að heilsugæsla SOS ætti stól sem Stellia gæti setið í án þess að detta til hliðar. Þegar stóllinn var dreginn fram brosti móðirin sínu breiðasta og ekki minnkaði gleðin þegar henni var sagt að hún mætti taka stólinn með heim.

tpa-picture-58242

Stellia var einnig mjög ánægð með stólinn, enda gat hún nú í fyrsta sinn séð heiminn með upprétt höfuð.

Stellia og móðir hennar koma nú á heilsugæslustöð SOS á tveggja vikna fresti í meðferð og eftirlit. Þetta hefur reynt nokkuð á Stelliu þar sem hún er farin að nota vöðva sem áður voru í hvíld og því finnur hún tímabundið til í þeim – en það er vel þess virði!

„Kraftaverkastólarnir“ eru hannaðir og smíðaðir af starfsfólki SOS Barnaþorpanna og hafa bætt líf fjölda barna sem glíma við ýmis konar fötlun. Sá stuðningur og fræðsla sem móðir Stelliu fékk hefur orðið til þess að bæta líf og umönnun Stelliu og við gerum ráð fyrir að móðirin muni hjálpa öðrum mæðrum í nágrenni sínu sem eiga fötluð börn.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica