Fyrsta afmælisveislan
Hver kannast ekki við þá spennu sem því fylgir að vera barn og bíða eftir eigin afmælisveislu? Tvíburasysturnar Magali og Sandra héldu nýverið upp á fimm ára afmælið í SOS Barnaþorpi í Bólivíu. Þetta var fyrsta afmælisveisla þeirra systra.
Magali og Sandra fengu því miður aldrei að halda afmælisveislu fyrr en þær fluttu í SOS Barnaþorpið í Sucre í Bólivíu. Þar hafa þær nú búið í tæpt ár og óhætt er að segja að þær hafi hlakkað mikið til veislunnar. Dagana fyrir afmælið spurðu þær SOS-móður sína ítrekað: „Eigum við afmæli í dag?“ og fengu alltaf sama svar: „Nei, ekki í dag, en bráðum.“
SOS-móðirin bakaði smákökur, bökur, bollur og afmælisköku fyrir veisluna. Kvöldið fyrir veisluna höfðu nokkur eldri börn í þorpinu tekið sig til og útbúið ávaxtahlaup (gelatín), en slíkt telst nauðsynlegt í afmælisveislum þar á slóðum.

Á afmælisdaginn fengu tvíburasysturnar ný föt (kjóla) og tóku á móti gestum eins og prinsessum sæmir. Hvort hegðun þeirra það sem eftir lifði dags var einnig að hætti prinsessa skal ósagt látið. Rúsínan í pylsuendanum var svo heimsókn trúðs sem SOS-móðirin hafði fengið til að skemmta gestunum.
Þær systur Magali og Sandra eru þegar farnar að hlakka til sex ára afmælisins!

