Illa stöddum barnafjölskyldum komið til hjálpar
Saga frá Bólivíu
Fjölskylduefling SOS hjálpar illa stöddum barnafjölskyldum og er markmiðið að fjölskyldan geti sjálf mætt þörfum barnanna og ekki þurfi að koma til aðskilnaðar.
Gabríela er 32 ára fjögurra barna móðir í Bólivíu. Hún býr ásamt eiginmanni og börnum í litlu húsnæði sem þeim tókst að kaupa sér fyrir mörgum árum með ráðdeild og sparnaði.
Eiginmaður Gabríelu var atvinnulaus en hún var sjálfstæð saumakona með vinnuaðstöðu heima hjá sér. Þegar svo brotist var inn á litla heimili þeirra og öllu stolið, þ.á.m. saumavélunum hrundi veröld Gabríelu og Fjölskylduefling SOS Barnaþorpanna kom til hjálpar. Gabríela gekk þá með fjórða barn þeirra hjóna.
Í dag eru börnin á aldrinum 1, 3, 5 og 14 ára. Það yngsta fær fljótlega pláss á dagheimili SOS þar sem næstyngsta systkinið er nú þegar. Slíkt gerir Gabríelu og eiginmanni hennar kleift að sækja námskeið og afla heimilinu tekna. Tvö elstu systkinin eru í skóla.
Gabríela og börnin hennar fjögurGabríela hefur sótt námskeið hjá SOS í stofnun og rekstri lítilla fyrirtækja. Einnig hefur hún lært hvernig hún geti eflt sjálfstraustið, en verulega vantaði upp á það hjá Gabríelu. Allur hennar tími og orka fór í vinnuna, heimilið og börnin; hún einfaldlega gleymdi sjálfri sér. Nú hefur hún lært að meta sjálfa sig að verðleikum, sem konu og móður.
Gabríela og eiginmaður hennar fengu vaxtalaust örlán hjá SOS og opnuðu litla geisladiska- og DVD sölu á markaðnum í bænum.
Í framtíðinni vonast Gabríela til að eiginmaðurinn geti séð alfarið um söluna og að sjálf fái hún annað örlán svo hún geti keypt sér nýjar saumavélar og haldið áfram saumaskapnum og tryggt þannig fjárhagslega afkomu og öryggi fjölskyldunnar.

