• Systurnar Kama og Irene
    Systurnar Kama og Irene

Kama brosir á ný

7.2.2012

„Mér finnst skemmtilegast að læra að lesa“, segir hin fimm ára gamla Kama sem býr í SOS Barnaþorpinu í Juah í Líberíu þegar hún er spurð hvað henni finnist skemmtilegast í leikskólanum.

Kama er munaðarlaus. Faðir hennar varð fyrir voðaskoti á veiðum og móðir hennar sem var andlega vanheil drukknaði við böðun í sjó.

En Kama átti ömmu á lífi sem var 70 ára og tók hún stúlkuna og systur hennar að sér. Fljótlega komst þó amman að því að aldur hennar og fátækt komu í veg fyrir að hún gæti annast stúlkurnar vel svo hún fór að svipast um eftir öðrum úrræðum fyrir börnin.

Það voru því neyð og áhyggjur ömmunnar ásamt ást hennar til barnabarnanna sem urðu til þess að Kama (þá þriggja ára) og systir hennar Irene fluttust í SOS Barnaþorpið árið 2009.

„Fyrst þegar Kama kom í barnaþorpið var hún með uppblásinn maga og granna fætur. Slíkt getur verið merki um vannæringu“, útskýrir Olive, SOS-móðir systranna. „Hún leit ekki vel út og virtist líða illa“, bætir hún við.

„En í dag líður henni vel. Hún er mjög hraust og dugleg“, segir Olive með bros á vör.

tpa-picture-57214Spurð út í aðrar framfarir stúlkunnar segir Olive að þegar Kama kom fyrst í barnaþorpið hafi hún farið að gráta þegar reynt var að kenna henni eitthvað. „En í dag er hún mjög námsfús og hún er alltaf að læra eitthvað nýtt í leikskólanum. Þá hefur hún þroskast mjög félagslega síðan hún kom hingað og hún hefur eignast góða vini sem hún leikur sér við.“

Kama hefur fengið nýtt tækifæri í lífinu. Hver sem kynnir sér líf hennar áður en hún kom til SOS og eftir kemst að því að starf SOS Barnaþorpanna og stuðningur almennings við barnahjálp samtakanna skilar árangri. Kama litla á nú gott heimili, fjölskyldu og barnvænt umhverfi þar sem hún fær að vaxa og þroskast áhyggjulaus – með systur sinni Irene, þrátt fyrir sorglega fortíð.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica