• tpa-picture-57031

Móðir, sex börn og asnakerra

31.1.2012

Það er þröngt á þingi við Shabelle ána í Eþíópíu. Fólk þyrpist að ánni til að ná í vatn. Rahmo (12) og yngri bróðir hennar eru í mannþrönginni. Þau fylla tunnu af vatni en tunnan er fest á asnakerru sem SOS Barnaþorpin gáfu fjölskyldu barnanna.


Systkinin búa í Gode ásamt móður sinni. Hitinn er óbærilegur og þurrkarnir geta reynt á þolrifin. Shabelle áin er sannkölluð lífæð fyrir íbúa héraðsins og margir hafa af því atvinnu að sækja vatn og selja fólki sem býr fjarri ánni. Við slíka iðju eru góður asni og asnakerra gulls ígildi.


tpa-picture-57035Fjölskyldan samanstendur af móðurinni Ardi og börnunum hennar sex. Yngsta barnið er fimm ára og Rahmo er elst, tólf ára eins og fyrr segir. Ardi er fráskilin og fær engan stuðning frá sínum fyrrverandi til að mæta þörfum barnanna.


SOS Barnaþorpin á Íslandi koma að fjármögnun neyðaraðstoðar samtakanna í Gode héraði í Eþíópíu. Samtökin leggja nú áherslu á að hjálpa fólki til sjálfshjálpar eftir að versti hluti hungursneyðarinnar er yfir staðinn. Hluti af þessari aðstoð er að gefa fjölskyldum asnakerrur.


tpa-picture-57030Ardi er ein þeirra sem fengu asnakerrur (og asna) hjá SOS. Kerruna notar hún til að sækja vatn í Shabelle ána fimm sinnum á dag og selur það til íbúa sveitanna í kring. Eldri börnin hennar hjálpa henni eftir skóla. Upp úr þessu hefur fjölskyldan um 50 birr á dag (um 350 krónur) sem hún notar til að kaupa nauðsynjar, s.s. mat og námsbækur fyrir börn sín.


Alls hafa 70 illa staddar og barnmargar fjölskyldur í Gode héraði fengið asnakerrur hjá SOS Barnaþorpunum. Gjafirnar létt þeim lífið verulega og gera þeim kleift að afla tekna með einföldum hætti.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica