• Frá SOS Barnaþorpinu í Neradim
    Frá SOS Barnaþorpinu í Neradim

Lífið er yndislegt... við erum saddar og sælar

20.1.2012

Borgin Arad í Suður-Ísrael er staðsett á jaðri Negev eyðimerkurinnar. Þar er SOS Barnaþorpið í Neradim staðsett en það er heimili 120 áður umkomulausra barna. En barnaþorpið hefur upp á fleira að bjóða.

Í barnaþorpinu er sérstakt athvarf fyrir 6-12 ára börn sem skyndilega hafa verið yfirgefin eða mátt þola kynferðislega-, líkamlega- eða andlega misnotkun. Í athvarfinu fá börnin nauðsynlegt öryggi og vernd og geta dvalið þar í allt að þrjá mánuði. Eftir þann tíma býðst börnunum varanlegt heimili í SOS Barnaþorpinu ef yfirvöld telja foreldrana óhæfa til að annast þau og önnur úrræði eru ekki fyrir hendi.

Drora er SOS-móðir sem starfar í athvarfinu. Hún segir svo frá starfi sínu:

„Þegar barn kemur til okkar tilfinningalega niðurbrotið gegni ég lykilhlutverki. Ég tek við barninu og umvef það með allri þeirri umhyggju sem ég á. Best finnst mér ef ég fæ barnið til að brosa. Eftir þessi fyrstu samskipti mín við barnið sé ég til þess að það upplifi rútínu í daglegu lífi, hreinlæti, gott mataræði, fari eftir ákveðnum reglum athvarfsins og virði þær takmarkanir sem í gildi eru. Ég fer alltaf varlega að hverju barni og sé til þess að það geti aðlagast nýjum aðstæðum.“

Sú umhyggja og ást sem börnin upplifa strax við komuna í athvarfið hjálpar mjög til við að byggja upp sjálfstraust þeirra. Þau vita að þau eiga einhvern að sem er alltaf tilbúinn til að sinna þeim. Allt þetta ferli hjálpar börnunum að snúa bakinu við fortíðinni og njóta þess að vera börn.

„Nýlega komu hingað tvær systur frá Súdan. Þær voru 8 og 10 ára og hvorki læsar né skrifandi. Á hverjum morgni fengu þær kennslu í stærðfræði, ensku, skrift og lestri. Í dag kunna þær bæði að lesa og skrifa og þær hafa sýnt miklar framfarir í náminu. Þetta eru yndislegar stúlkur sem vilja standa sig vel. Það yljar manni um hjartaræturnar að heyra þær lesa hebreska texta.“

„Á hverjum sunnudegi mæta þær í matreiðsluklúbb barnaþorpsins, klæddar í svuntur og staðráðnar í að læra eitthvað nýtt. Þær hnoða deigið, skera, krydda og læra að útbúa allskyns rétti. Þær hafa m.a. lært að gera pizzu, súkkulaðibitakökur, morgunmat, rúnstykki og ýmislegt fleira sem börnum finnst gott. Í lok tímans sitja þær við matarborðið og gæða sér á afrakstrinum með bros á vor, líkt og þær væru að segja:  

„Lífið er yndislegt... við erum saddar og sælar.“




Þetta vefsvæði byggir á Eplica