• Macarena var átta ára þegar hún flutti í SOS Barnaþorpið
    Macarena var átta ára þegar hún flutti í SOS Barnaþorpið

Heimsækir barnaþorpið sitt um jólin

20.12.2011

Jólin eru handan við hornið og Macarena hlakkar til að hitta SOS fjölskyldu sína í barnaþorpinu í Puerto Varas í Chile. Þrátt fyrir að vera önnum kafin í starfi sínu sem lífefnafræðingur gæti hún ekki hugsað sér að sleppa því að heimsækja barnaþorpið um jólin.


Macarena var aðeins átta ára þegar hún flutti í syðsta barnaþorpið í Chile árið 1988. Móðir hennar var þá alvarlega veik og gat ekki annast Macarenu og yngri bróður hennar. Hún tók því þá ákvörðun að koma börnunum í góðar hendur SOS móður í barnaþorpinu í Puerto Varas.

„Móðir hennar greindist með krabbamein og mér finnst hún hafa sýnt mikið hugrekki þegar hún ákvað að láta börnin frá sér og glíma svo við sjúkdóminn án þess að börnin þyrftu að horfa upp á þá glímu,“ segir SOS móðir systkinanna. „Sem betur fer dó móðirin ekki en hún treysti sér þó ekki til að taka aftur við börnunum.“

Macarena saknaði móður sinnar mjög til að byrja með en gerði sér smám saman grein fyrir því að barnaþorpið var góður staður og þar leið henni vel. Henni gekk vel í skóla og að lokum fór svo að hún útskrifaðist sem lífefnafræðingur og fékk góða stöðu í því fagi. Reyndar mun hún bráðum hætta í því starfi þar sem hún hefur fengið enn betra starf í Bandaríkjunum og mun flytja þangað eftir áramót.

Macarena ætlar samt fyrst að heimsækja SOS móður sína og –systkini nú um jólin. Hún getur ekki hugsað sér jólin án þess að heimsækja fjölskyldu sína í barnaþorpinu. Hún hefur haldið nánu sambandi við SOS móður, enda stóð hún alltaf þétt við bakið á henni; í gegnum súrt og sætt.

Macarena segir að velgengni hennar á öllum sviðum lífs síns vera SOS Barnaþorpunum að þakka.

„SOS hafa reynst mér ótrúlega vel. Þau gáfu mér SOS móður og systkini auk þess að leiða mig á braut vísindanna og starfsferils sem ég er afar hamingjusöm með,“

segir Macarena að lokum.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica