Sergio sér framtíðina í tölvum
Sergio Bruno ólst upp í SOS Barnaþorpinu í Rio Bonito í Brasilíu. Í dag er hann menntaður og sjálfstæður ungur maður og hefur fengið vinnu við að kenna ungmennum í þorpinu á tölvur.
Sergio (25) fluttist í SOS Barnaþorpið í Rio Bonito þegar hann var átta ára gamall. Þá hafði hann þegar búið hjá nokkrum fósturfjölskyldum og stofnunum.
Í barnaþorpinu eignaðist hann nýja móður og átta systkini. Hann rifjar upp árin í barnaþorpinu sem bestu ár ævi sinnar, en þar fékk hann að ganga í skóla samtakanna sem nýtur mikillar virðingar á svæðinu og er talinn einn sá besti í öllu héraðinu. Sergio gekk vel í náminu og fékk góðar einkunnir.
Að grunnskólanámi loknu fékk Sergio námsstyrk til að hefja nám í rekstri og viðhaldi tölvubúnaðar. Samhliða því námi fékk hann starfssamning á landsskrifstofu SOS Barnaþorpanna í Brasilíu. Þekking hans og hæfni jókst hratt á þeim tíma og hefur opnað honum ýmsar leiðir á almennum vinnumarkaði.
Nú líður senn að því að Sergio útskrifist með gráðu í tölvunetum og vonast til að geta náð sér í CCNA (Cisco Certified Network Associate) gráðu áður en langt um líður.
Um þessar mundir starfar Sergio fyrir sitt gamla barnaþorp í Rio Bonito þar sem hann kennir unglingum á tölvur og undirbýr þá þannig fyrir nám og störf framtíðarinnar.
Frá SOS Barnaþorpinu í Rio Bonito í Brasilíu

