• tpa_picture_18848
    Börn í SOS Barnaþorpinu í Jakarta á Indónesíu

Gaman að hjálpa

1.11.2011

Mimi er í skóla fyrir fötluð börn og ungmenni í Indónesíu. Hún er í 11.bekk og fallegt bros hennar gefur síður en svo til kynna að hún glími við fötlun.

Mimi var tveggja ára þegar komið var með hana í SOS Barnaþorpið í Bali. Hún var þá svo veikburða að hún gat ekki einu sinni haldið á litlum hlutum í höndunum. SOS móðir hennar gerði það sem allar aðrar mæður myndu gera fyrir börnin sín; hún reyndi að lina þjáningar dóttur sinnar og fór með hana í reglulegar skoðanir til sérfræðinga.

Þegar Mimi var fjögurra ára hafði hún náð auknum styrk en hún var talsvert á eftir jafnöldrum sínum í andlegum þroska. Hún átti erfitt með að taka leiðbeiningum, tala og muna það sem við hana var sagt. SOS móðir hennar og forstöðumaður þorpsins fóru með hana til sálfræðings sem lagði til að hún færi í skóla fyrir börn með sérþarfir.

Það varð svo úr að hún hóf nám í heimavistarskóla í Jakarta sem býður börnum með sérþarfir bæði upp á nám og meðferðir. Um helgar gistir hún svo í barnaþorpinu í Jakarta og býr þá með öðrum SOS börnum.

Mimi er sjálfstæð og getur gert margt hjálparlaust. Hún er hjálpsöm og leggur sitt af mörkum á heimilinu, t.d. með því að elda, þrífa heimavistina o.fl. Í frítíma sínum finnst henni skemmtilegast að hlaupa og spila boltaleiki.

Einn af styrkleikum Mimi er hve auðvelt hún á með að sýna öðrum ástúð og umhyggju. Önnur börn á heimavistinni njóta oft þessa eiginleika hennar sem hún lærði í SOS Barnaþorpinu en þar er börnum kennt að hjálpa hvert öðru eftir fremsta megni.

Mimi gefur annarri fatlaðri stúlku að borðaÞað er heillandi að sjá hvernig Mimi hjálpar ungri stúlku sem býr á heimavistinni. Stúlkan þarf að vera með hjálm til að reka ekki höfuðið í veggi, borð, skápa og aðra hluti. Hún er stöðugt háð hjálp annarra. Mimi hjálpar henni oft að borða og gefur henni þá stundum banana með skeið.

Mimi er aðdáunarverð manneskja sem hefur náð miklum árangri þrátt fyrir fötlun sína. Sem kannski sést best á því að hún er komin í framhaldsskóla.

Hér getur þú gerst styrktarforeldri barns í SOS Barnaþorpi.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica