Hvað varð um Kamini?
Árið 1999 missti Kamini foreldra sína í fellibyl. Hún var þá tíu ára. Í kjölfarið fékk hún heimili og móður í SOS Barnaþorpi. En síðan eru liðin tólf ár. Hvað skyldi hafa orðið um hana?
Í lok október 1999 gekk fellibylur yfir Orissa hérað á Indlandi með hræðilegum afleiðingum. Þúsundir létu lífið, milljónir urðu heimilislausar og fjöldi barna varð umkomulaus. Kamini var ein þeirra. Sjá umfjöllun Morgunblaðsins um hamfarirnar á sínum tíma.
Kamini bjó í litlu þorpi nærri Rourkela ásamt foreldrum sínum og yngri bróður. Daginn örlagaríka missti hún báða foreldra sína en þau systkinin lifðu af. „Pabbi og mamma höfðu farið að veiða og ég var heima með bróður mínum þegar ósköpin dundu yfir. Skyndilega hvarf allt. Öll húsin í þorpinu voru rústir einar. Bróðir minn hágrét og ég var hrædd.“ Þannig minnist Kamini atburðanna.
Bæjaryfirvöld tóku systkinin að sér og báðu svo SOS Barnaþorpin um að taka við þeim eftir að hafa kannað aðstæður þeirra gaumgæfilega. Þau fengu heimili í barnaþorpinu í Rourkela þar sem SOS móðirin Sanjukta tók þau að sér. Hún segir svo frá:
„Kamini var eðlilega í miklu áfalli þegar hún kom. Hún var feimin tíu ára stúlka og nánast hvíslaði þegar hún talaði. Hún átti það til að vakna upp um miðjar nætur og fara að gráta. Til að byrja með var erfitt að hugga hana en í dag eru allir þessir erfiðleikar að baki, Guði sé lof.“
Kamini í dag
Á síðasta ári útskrifaðist Kamini með láði sem hjúkrunarfræðingur og var í kjölfarið boðið starf við eitt virtasta sjúkrahúsið í Orissa héraði: Apollo sjúkrahúsið í Bhubaneswar þar sem hún starfar nú.
Kamini geislar af sjálfsöryggi og er tilbúin að takast á við lífið sem sjálfstæð ung kona. Hún vill ekki gifta sig alveg strax, heldur bíða í nokkur ár. „Ég ætla að bæta við mig námi og vinna í fimm ár áður en ég gifti mig,“ segir hún.
Þú getur gerst styrktarforeldri umkomulauss barns og séð því fyrir nýjum tækifærum, móður og góðri æsku í SOS Barnaþorpi. Gerast styrktarforeldri.

