• Ungur drengur í SOS Barnaþorpi í Eþíópíu
    Ungur drengur í SOS Barnaþorpi í Eþíópíu

Götubetlari fær gott heimili

23.8.2011

Sumum börnum sem fæðast inn í þennan heim stendur ekki til boða gott heimili, ástríkir foreldrar og heilbrigt umhverfi til uppvaxtar. Daníel er einn þessara barna. Strax við fæðingu átti hann nánast enga von.


Daníel fæddist í Mekelle í Eþíópíu. Báðir foreldrar hans þjást af geðklofa og Daníel litli fékk ekki þá umhyggju sem hann þurfti. Móðir hans hafði eignast nokkur börn sem öll dóu  vegna vannæringar og skorts á heilbrigðisþjónustu.

Fyrstu daga ævi sinnar bjó Daníel litli á gangstétt nálægt kirkju heilagrar Maríu í Mekelle en fjölskyldan færði sig reglulega um set í borginni. Þau reistu sér einhvers konar hreysi úr „byggingarefni“ sem þau fundu á víðavangi; pappakössum, trjágreinum, plastábreiðum o.fl.

Dag einn kynntist móðir Daníels öðrum karlmanni sem einnig er geðklofi. Hún giftist honum líka og fjölskyldan stækkaði: Eitt lítið barn, tveir geðklofa karlar og ein geðklofa móðir. Öll drógu þau fram lífið með því að betla á götum úti og Daníel fékk grunnþörfum sínum hvergi nærri mætt.

map-ethiopia-enEitt sinn var fjölskyldan rekin á brott frá þeim stað sem þau höfðu komið sér fyrir á. Þau fluttu þá á gangstétt í nágrenni SOS Barnaþorpsins í Mekelle. Líf fjölskyldunnar var mjög erfitt en einkum þó fyrir Daníel. Hann var vannærður og illa leikinn af sólinni, hitanum, regninu og kuldanum.

Daníel var bara einn fjölmargra barna í þessum heimi sem var heimilislaus og fékk ekki grunnþörfum sínum mætt; ekki einu sinni þörfinni fyrir ástúð og umhyggju.

Starfsfólk SOS Barnaþorpsins tók eftir Daníel og hafði samband við yfirvöld. Í kjölfarið var Daníel boðið heimili í barnaþorpinu og fluttist þangað þann 30. júní 2010. Í dag er Daníel hraustur og kátur drengur. Hann fær andlegum, félagslegum og líkamlegum þörfum sínum mætt og skyndilega er tilveran farin að brosa við þessum litla fyrrverandi götubetlara.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica