• Arnol er munaðarlaus en hefur eignast gott heimili og móður í SOS Barnaþorpi
    Arnol er munaðarlaus en hefur eignast gott heimili og móður í SOS Barnaþorpi

Perú: Arnol og systur hans bjargað

16.8.2011

Arnol litli er ekki orðinn eins árs en hefur upplifað mikið mótlæti í lífinu þrátt fyrir ungan aldur. Í dag býr hann í SOS Barnaþorpi í Perú og er glaðvær, hraustur og hamingjusamur. Systir hans brosir ekki eins mikið en er öll að koma til.

Árið 2009 lögðu hjónin Sonja og Alvaro upp í ferð frá Perú til La Paz í Bólivíu ásamt dóttur sinni Karen. Sonja var ófrísk og rétt áður en þau ætluðu að snúa aftur til Perú fæddist Arnol, nokkuð fyrir tímann. Heilsu Sonju hrakaði strax í kjölfarið og varð hún mjög veik. Þau hjónin ákváðu að fresta heimferðinni þar til Sonja hefði náð sér af veikindunum.

Þegar hún svo treysti sér til lögðu þau af stað en heilsu hennar hrakaði á nýjan leik og varð enn verri en áður. Hún leitaði til lækna en þeir gátu ekki hjálpað henni og hún kvaddi þennan heim.

Alvaro var nú einstæður tveggja barna faðir. Hann lagði upp í ferð til að leita að vinnu en snéri aldrei aftur. Börnin áttu nú engan að og dóttirin var mjög örvæntingarfull. Yfirvöld komu systkinunum fyrir á sitthvoru heimilinu, Arnol flutti til fátækrar ömmu sinnar upp í sveit en Karen fluttist til frænku þeirra í bænum. Hvorug konan gat þó mætt grunnþörfum barnanna og að lokum tóku yfirvöld börnin af þeim og útveguðu þeim heimili í SOS Barnaþorpinu í Juliaca. Þetta gerðist í maí á þessu ári.

tpa-picture-54192Í barnaþorpinu fengu Karen og Arnol ekki aðeins hlýjar móttökur SOS-móður þeirra og –systkina heldur einnig allra annarra í barnaþorpinu, sem samanstendur af fjölda barna og starfsfólks.

Forstöðumaður barnaþorpsins segir að Karen og Arnol dafni vel í þorpinu. Þau leggja allt sitt traust á SOS-móður sína Normu og SOS-systkini sín þau Vicente, Caricia og Royer.

„Þegar Arnol og Karen komu til okkar varð Royer svolítið afbrýðissamur. En eftir því sem þau fóru að leika sér meira saman hvarf öll afbrýðissemi og vinskapur myndaðist,“ segir SOS-móðirin Norma. „Og Caricia leggur sig alla fram við að kenna Arnol ný orð svo þau geti átt góð samskipti. Ég held að þeim líði mjög vel hérna hjá okkur.“ 

Á myndinni hér til hliðar heldur Royer á Arnol.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica