Fyrrum SOS-barn snýr aftur til Haítí
„Hvar eru skórnir þínir? Náðu í þá!“ Þannig kallar Nathalie Nozile til drengs í SOS Barnaþorpinu í Santo á Haítí þar sem hann hleypur um berfættur á grasinu. Um leið minnist Nathalie þess þegar SOS-móðir hennar minnti hana á að vera ekki berfætt utandyra.
Nathalie (25) er fyrrum SOS-barn og bjó í húsi nr. 18 í barnaþorpinu í Santo í útjaðri Port-au-Prince. Hún er nú stödd í þorpinu en ætti í raun að vera heima að læra, en hún stundar laganám við háskólann í Flórída (University of Florida) og reiknar með að útskrifast þaðan í vor.
Þegar jarðskjálftinn mikli reið yfir Haítí í janúar vildi hún strax komast þangað til að hjálpa en gekk illa að fá flugmiða. En nú er hún loksins komin og sinnir sjálfboðaliðastörfum fyrir neyðaraðstoð SOS Barnaþorpanna á Haítí.

Nathalie ásamt nokkrum börnum í barnaþorpinu í Santo
Nathalie hafði hugsað sér að vinna sem lögmaður í Bandaríkjunum fyrstu tíu árin eftir útskrift til að geta greitt niður námslánin. Nú hefur hún hins vegar ákveðið að snúa strax aftur til Haítí að námi loknu og hjálpa til við uppbygginguna þar fái hún vinnu þar sem lögmaður.
„Sum börnin sem búa hérna tímabundið í barnaþorpinu eiga nákomna ættingja á lífi utan þorpsins. Ég held það geti orðið erfitt fyrir þau að snúa aftur til ættingja sinna. Hérna fá þau að vera börn, hlaupa um og leika sér – eins og börnum ber – þau fá þrjár máltíðir á dag, sturtu og ást og umhyggju. Þetta er enginn munaður, heldur bara það sem börn eiga rétt á að fá. En fyrir barn sem er vant að sitja við hlið móður sinnar á markaðnum og selja grænmeti allan daginn, hlýtur lífið í barnaþorpinu að vera algjör sæla,“ segir Nathalie.
Hjálparsjóður SOS vegna Haítí: Reikningur: 0701–26–003116 - kt. 500289-2529

