Upplifir skjálftann aftur og aftur
„Farðu nú út og leiktu þér í smá stund.“ Þetta var það síðasta sem Yannick* (12 ára) heyrði móður sína segja áður en jarðskjálftinn á Haítí tók líf hennar.
Yannick fór út þar sem hann hafði ekki áhuga á að deila við móður sína. Þau mæðginin bjuggu ein í litlu húsnæði en faðir hans yfirgaf þau fyrir mörgum árum. „Sem betur fer fór pabbi frá okkur,“ segir Yannick, „vegna þess að hann barði okkur oft.“ Yannick og móður hans, sem átti erfitt með gang sökum fötlunar, gekk ágætlega saman að sjá fyrir sér í hörðum heimi.
Yannick man að um leið og hann var kominn út byrjaði jörðin að hristast með látum. Litla húsið þeirra hrundi til grunna fyrir aftan hann og móðir hans grófst undir rústunum.
Yannick varð skelfingu lostinn og hljóp örvæntingarfullur út á götu. Frænka hans tók hann til sín og sinnti honum fyrstu dagana á eftir en þeir voru þeim báðum mjög erfiðir. Þau sváfu úti undir berum himni og borðuðu nánast ekkert þar til þau fengu matargjöf frá hjálparstamtökum.
Þann 30. janúar sl. (18 dögum eftir skjálftann) var loks komið með drenginn í SOS Barnaþorpið í Santo. Hann heldur sig mjög til hlés og fylgist þögull með lífinu í barnaþorpinu. Á daginn líður honum ágætlega en fær slæmar martraðir á næturnar þar sem hann upplifir skjálftann aftur og aftur. Þá kaldsvitnar hann og á það til að kasta upp.
Sálfræðingar á vegum SOS sinna Yannick. Hann veit að hann er á öruggum stað og í góðum höndum fólks sem vill hjálpa honum. En sorgin er svo sannarlega enn til staðar í lífi þessa unga drengs.
* Ekki hans rétta nafn
