Heyrnarlaus (döff), en talar við börnin sín
Þau eru hjón. Hann er 34 ára, hún 20 ára. Þau eiga þrjú börn. Hann er heyrnarlaus (döff), hefur enga heyrn á öðru eyra og nánast enga á hinu. Þau hafa nýtt sér þjónustu samfélagsmiðstöðvar SOS-barnaþorpanna.
Liliana Buesaquillo er tvítug. Eiginmaður hennar, Milton Yaguapaz er 34 ára og þau búa í borginni Ipiales í Kólombíu (sjá kort hér neðst).
Milton lenti í alvarlegu slysi þegar hann var 12 ára. Hann missti alla heyrn á hægra eyra og nánast alla heyrn á því vinstra.
Þau Milton og Liliana hittust fyrst þegar hún var 15 ára og seldi „tintos“ (svart kaffi í litlum bollum) á markaðnum.
Milton vann fyrir sér með því að selja ávexti og átti leið hjá kaffistandi Liliönu. Hann ákvað að vinna hjarta stúlkunnar og byrjaði á því að öðlast samúð hennar og fá frá henni umhyggju. Hann gaf henni ávexti og önnur matvæli og fylgdi henni heim eftir vinnu nánast hvern einasta dag.
Til að byrja með reyndi vinátta þeirra talsvert á þau bæði þar sem Milton átti erfitt með að tjá sig og hann þurfti að reiða sig á varalestur til að skilja hana.
Eftir nokkurra mánaða kynni fór Liliana til borgarinnar Pasto þar sem hún lærði kólombískt táknmál. Að náminu loknu snéri hún aftur heim til Ipiales og samskipti þeirra urðu mun auðveldari en áður. Þau trúlofuðu sig og giftu sig svo fimm mánuðum síðar.
Sökum eljusemi og áræðni Miltons var honum vel tekið af fjölskyldu Liliönu. Liliana varð fljótlega barnshafandi (aðeins 16 ára að aldri), Milton til mikillar gleði. Hann hugsaði vel um eiginkonu sína á meðgöngunni og eftir að dóttirin Paola kom í heiminn tók hann föðurhlutverkið mjög alvarlega og reyndist góður faðir. Liliana segir að hann hafi verið eins og lítill strákur með nýtt leikfang.
Milton gat ekki talað við Paolu en hann gat veitt henni umhyggju og ástúð, horft í augu hennar og spilað fyrir hana á hljóðfæri.
Fljótlega bættust svo við tvö börn, fyrst dóttirin Brigith og svo sonurinn Osman.
Við fyrstu sýn virðast samskipti fjölskyldunnar nokkuð erfið ef ekki ómöguleg. Fjölskyldan sjálf segir það af og frá.
Liliana hefur alltaf stutt þá viðleitni eiginmannsins að eiga samskipti við börnin sín. Hún hefur kennt þeim tákn sem Milton skilur og þannig skilið hvað þau eru að segja. Sömuleiðis leyfir hún Milton ekki að gefa börnunum hluti sem þau bara benda á, heldur verður hann að bíða þar til þau hafa sagt hvað þau vilja áður en hann má gefa þeim það.
Milton á það einnig til að leiðrétta börnin sín ef þau nota vitlaus tákn. Börnin hafa einnig vanið sig á að tala fyrir framan föður sinn svo hann geti lesið af vörum þeirra.
Milton og Liliana hafa um tveggja ára skeið verið fastagestir í samfélagsmiðstöð SOS-barnaþorpanna í Ipiales og notið þar hjálpar og ráðgjafar. Þau hafa sýnt það og sannað að svokölluð fötlun þeirra er ekkert nema hindrun sem þarf að sigrast á og þó svo að það virðist ómögulegt getur hvaða faðir sem er fundið leiðir til að „tala“ við börn sín.

