Rijad - bjartasta vonin
Það er orðið langt síðan Rijad flutti í SOS-barnaþorpið. Þá var hann ellefu ára. Í dag er hann tvítugur og hefur notið níu góðra ára í SOS-barnaþorpinu í Gracanica í Bosníu Hersegóvínu.
Þegar móðir Rijads lést stóð faðir hans frammi fyrir erfiðustu ákvörðun lífs síns. Hvernig gat hann tryggt velferð barna sinna? Hann starfaði sem verkamaður á lágum launum og elskaði börn sín út af lífinu. Hann sá þó ekki fram á að geta séð fyrir þeim einn og bað SOS-barnaþorpin að taka við þeim.
Lífið í barnaþorpinu var erfitt til að byrja með fyrir Rijad. Hann var ekki vanur þéttbýli og átti erfitt með að sætta sig við nýja fjölskyldu og nýtt lífsmynstur. Stuttu eftir að Rijad flutti í barnaþorpið hóf hann nám í fimmta bekk. Honum gekk illa í náminu og fékk mun lakari einkunnir en hann hafði áður fengið.
Indira, SOS-móðir hans, ákvað að leggja ekki áherslu á að hann næði árangri í skólanum. Þess í stað ákvað hún að umvefja Rijad og systkini hans með ástúð og umhyggju. Hún var staðráðin í að hjálpa systkinunum að fóta sig í lífinu og það tókst. Hún reyndist börnunum stoð þeirra og stytta á erfiðu tímabili í lífi þeirra. Þegar Rijad hafði samþykkt SOS-móður sína fór árangurinn að koma í ljós.
Að grunnskólanámi loknu skráði Rijad sig í starfsnám á framhaldsskólastigi í bænum Tuzla og fékk pláss á SOS-ungmennaheimilinu á staðnum. SOS-móðir hans hvatti hann til að helga sig náminu og taka eins marga aukaáfanga og hann gæti. Rijad tók áfanga í leiklist og talstöðvafjarskiptum auk þess sem hann æfði hjólreiðar með íþróttafélagi í bænum.
Ekki leið á löngu þar til Rijad fór að fá viðurkenningar, bikara og verðlaunapeninga fyrir góðan árangur í fjarskipta- og hjólreiðakeppnum. Hann var þó alltaf mest fyrir leiklistina, sérstaklega eftir að hann gerðist meðlimur í leiklistarfélagi ungmenna í Tuzla. Fyrsta hlutverk Rijads í leikritinu From here to a Dream sannfærði hann um að leiklist væri hans köllun í lífinu.
Rijad byrjaði að æfa sig fyrir inntökupróf í listaskólann í Sarajevo löngu áður en hann útskrifaðist úr framhaldsskólanum. Inntökuprófið er eina von margra áhugasamra ungmenna um að fá að leika á stóru sviði í framtíðinni og Rijad gerði sér grein fyrir mikilvægi prófsins.
Rijad tók sér góðan tíma til að æfa brot úr kvikmyndinni Perfect Circle eftir bosníska leikstjórann Ademir Kenovic. Myndin segir frá ljóðskáldi og tveimur munaðarlausum drengjum sem sleppa lifandi úr stríðinu í Sarajevo. „Ég heillaðist strax og ég sá myndina í fyrsta sinn. Ég vissi um leið að ég myndi taka atriði úr myndinni á inntökuprófinu,“ segir Rijad og bætir við að hann hafi skynjað ánægju dómnefndarinnar á meðan hann lék fyrir hana á sviðinu.
Nokkrum dögum eftir inntökuprófið fékk Rijad símtal og staðfest var að hann væri kominn inn í listaskólann. Draumur hans hafði ræst. Rijad vissi þó ekki að aðeins átta nýir nemendur komust inn og því var um mikinn sigur fyrir hann að ræða.
Rijad var varla kominn niður úr skýjunum þegar hann fékk að vita að bæjarstjórn Tuzla hafði valið hann sem björtustu von bæjarins árið 2007.
SOS-móðir og systkini Rijads voru öll viðstödd afhendingu viðurkenningarinnar og sátu á fremsta bekk. „Systkini mín útbjuggu borða með nafni mínu á,“ útskýrir Rijad. Þau fögnuðu og hrópuðu nafn hans lengi eftir hann hafði veitt viðurkenningunni móttöku. SOS-móðir hans sagði að hún hafi líklega aldrei verið stoltari á ævinni.
Rijad er bjartsýnn og jákvæður. Honum finnst gaman í leiklistarnáminu, en „það gleður mig mest þegar ég sé að yngri systkini mín sjá mig sem fyrirmynd og leggja sig fram við að ná árangri og láta drauma sína rætast,“ segir Rijad að lokum – með bros á vör.

