Leið Maríu í flóttamannabúðirnar
María* er gullfalleg fjórtán ára stúlka frá Sri Lanka. Hún ólst upp ásamt yngri systur sinni Vidharshana í litla sveitaþorpinu Kanagaraimkulan í Killinochchi héraði í norðurhluta landsins.
María minnist þorpsins ekki sem friðsæls staðar þar sem þorpinu stóð stöðug ógn af vopnuðum sveitum Tamíltígra sem réðu nágrannahéraðinu. Hún man eftir því að hafa átt bróður en man ekkert eftir honum. Tamíltígrar námu hann á brott þegar hann var enn mjög ungur og þjálfuðu hann til vopnaðra átaka fyrir málstaðinn.
Á flótta
Undir lok síðasta skeiðs borgarastyrjaldarinnar þegar her landsins þjarmaði hvað mest að Tamíltígrum var fjölskylda Maríu á stöðugum flótta ásamt nokkrum nágrannafjölskyldum. Hún gerir sér enga grein fyrir því í hvaða átt þau flúðu, hvort það var norður, suður, austur eða vestur. En hún veit að þau tóku mikið dót með sér þegar þau flúðu heimilið. Fjölskyldurnar földu sig í skógivöxnu landi í marga daga og þegar faðir hennar sagði „Af stað“ lagði allur hópurinn á flótta í þá átt sem faðir hennar fyrirskipaði.
Bardagar
Oft þurftu þau að flýta sér svo mikið að þau urðu að skilja eftir hluta af þeim munum sem þau höfðu tekið með að heiman. Aldrei sáu þau einn einasta stjórnarhermann en stöðugt heyrðu þau hávaðann af skotbardögum í nágrenni við sig. Eins gátu þau ekki annað en orðið vör við þyrlur og herþotur sem flugu lágt yfir svæðið og létu sprengjur falla.
Þannig liðu vikurnar og oft höfðu þau engan mat. Þau gátu ekki heldur leyft sér að kveikja eld á nóttunni og oft rigndi hressilega á þau.
Foreldrar Maríu láta lífið
Ein nóttin mun aldrei líða Maríu úr minni. Þau voru þá stödd á svæði sem kallast Mulliwaikal og skyndilega brutust út mikil átök og sprengjum rigndi yfir svæðið. Þegar allt var orðið hljótt kom í ljós að báðir foreldrar hennar voru látnir. Amma hennar og yngri systir lifðu af og saman fylgdu þær straumi fólksins. Hún hafði aldrei hugmynd um hvert ferðinni var heitið.
Í flóttamannabúðirnar
Dag einn var María á gangi ásamt systur sinni, ömmu og um sjötíu öðrum þegar þau voru látin fara um borð í rútu og ekið „eitthvert“. Áfangastaðurinn var Manik Farm í Chettikulam flóttamannabúðunum.
María býr nú ásamst systur sinni í sérstakri aðstöðu SOS fyrir flóttabörn í búðunum. Amma stúlknanna býr annars staðar í flóttamannabúðunum og heimsækir stúlkurnar reglulega. María vonar að hún geti hafið nýtt líf og tekist á við áskoranir lífsins.
*Ekki hennar rétta nafn

