• Jomana ásamt börnum sínum
    Jomana ásamt börnum sínum

Gat ekki gefist upp

29.10.2008

Jomana er 48 ára fimm barna móðir í Jórdaníu. Fyrir nokkru var útlitið dökkt hjá fjölskyldunni sem átti það á hættu að sundrast vegna erfiðleika.

Klukkan er tíu á mánudagsmorgni. Það er þröngt á þingi í samfélagsmiðstöð SOS í Ksarnaba í Líbanon. Sumir eru komnir til að spyrjast fyrir um hugsanlega þátttöku í fjölskyldueflingu SOS, aðrir til að láta barnalækni SOS líta á börn sín og enn aðrir eru komnir til að fá upplýsingar um þau tungumála- og tölvunámskeið sem samfélagsmiðstöðin býður uppá. Ofangreind þjónusta er í boði fyrir skjólstæðinga fjölskyldueflingar SOS og alla aðra íbúa Bekaa héraðs sem telja sig þurfa á hjálp að halda.

Hin 48 ára gamla Jomana* er stödd í miðstöðinni þennan dag. Hún er þó ekki mætt í ofangreindum erindagjörðum heldur ferðaðist hún 60 km. leið til að sækja notuð föt sem hún svo selur í verslun sinni.

Jomana er skjólstæðingur fjölskyldueflingar SOS í Ksarnaba. Árið 2004 fékk hún fyrst aðstoð frá fjölskyldueflingunni til að greiða skólagjöld fyrir börnin sín fimm. Jomana og félagsráðgjafar SOS voru sammála um að hún þyrfti að geta aflað sér tekna og þar sem hún er ómenntuð, ólæs og -skrifandi var ákveðið að hún myndi byrja á því að selja notuð föt á heimili sínu. Jomana fékk því föt sem SOS hafði áskotnast og hóf að selja þau.

Samar Berro framkvæmdastjóri samfélagsmiðstöðvarinnar segir samtökin fá mikið af notuðum fötum og í tilviki umrædds skjólstæðings hafi verið upplagt að leyfa henni að selja hluta af þessum fötum og afla þannig illa stöddu heimili sínu tekna.

Einstæð, fimm börn, engin menntun

Jomana missti eiginmann sinn árið 2002. Fimm mánuðum eftir andlát hans eignaðist hún fimmta barnið. Í Bekaa héraði er ekki algengt að konur á hennar aldri séu með menntun eða á vinnumarkaði og því var staða hennar vægast sagt erfið eftir fráfall eiginmannsins.

„Ein dætra minna er mikið veik; hún þarf á lyfjum að halda fyrir 300.000 líbanísk pund (200 bandaríkjadalir) á mánuði. Það var mjög erfitt fyrir mig að borga svo háa upphæð mánaðarlega. Í dag fæ ég ókeypis lyf frá yfirvöldum ef þau eru þá til í opinberum lyfjaverslunum. Stundum eru þau ekki til þar og þá þarf ég að kaupa þau sjálf í einkareknum lyfjaverslunum í Beirút. Ef SOS hefði ekki hjálpað mér að koma upp fatasölu hefði ég ekki getað keypt þessi lyf þegar þannig stendur á,“ segir Jomana.

Viðskiptin

Jomana og börnin í fataversluninni„Litla fataverslunin mín er nú farin að standa undir sér og sjá okkur fyrir tekjum. Ég er meira að segja farin að geta keypt inn vörur fyrir verslunina frá Beirút. Viðskiptin hafa aukist og í dag er ég ekki bara með notuð föt heldur einnig ný. Stundum leyfi ég mér jafnvel að kaupa ný föt á börnin mín þegar ég fer til Beirút,“ segir Jomana brosandi.

Jomana segir að samkeppnin sé mikil og allsstaðar sé hægt að kaupa föt en nágrannar hennar vilja frekar kaupa fötin sín hjá henni og hjálpa henni þannig í erfiðleikum hennar. Ættingi minn leyfir mér að stunda viðskiptin í ókeypis húsnæði svo ég þarf ekki lengur að hafa verslunina inn á mínu eigin heimili. Einnig hafa nágrannar mínir sýnt mér mikinn skilning. Þannig hefur þessi verslunarrekstur ekki aðeins hjálpað mér fjárhagslega, heldur einnig tilfinningalega því eftir fráfall eiginmannsins var ég dofin og vissi ekki hvaða stefnu líf mitt myndi taka,“ segir Jomana.

Á tímabili hafði Jomana safnað talsverðum skuldum og náði ekki endum saman. Hún viðurkennir að þá hafi hún íhugað að viðurkenna ósigur sinn og gefast upp. Slíkt hefði getað leitt til þess að börnunum yrði komið fyrir á stofnunum. „En ég ákvað þó að gefast ekki upp, ég gat það ekki. Ég á fimm börn sem þarf að hugsa um og þau hafa sínar þarfir. Ég íhugaði að láta börnin hætta í skóla en sem betur fer sýndi skólastjórinn mér skilning og bauð mér að borga skólagjöldin þegar betur stæði á. Svo kynntist ég barnaþorpunum og fékk aðstoð fjölskyldueflingar SOS,“ segir Jomana að lokum.

Jomana er ekki rík af efnislegum gæðum. En með réttri hjálp hefur hún nú náð að sjá fyrir sér og börnum sínum fimm með mannsæmandi hætti – án þess að taka börnin úr námi. Þökk sé SOS-skjólvinum sem fjármagna fjölskyldueflingu SOS.

* Vegna reglna um persónuvernd hefur nafni skjólstæðings verið breytt.

Jórdanía






Þetta vefsvæði byggir á Eplica