Lenti í sjálfsmorðssprengjuárás - en neitar að gefast upp!
Dr. Abdullahi Moallin er yfirlæknir sjúkrahúss SOS Barnaþorpanna í Mogadishu í Sómalíu. Hann stundaði nám í Sómalíu og á Ítalíu og starfaði í Evrópu til ársins 2005. Í desember sl. lenti hann í sjálfsmorðssprengjuárás í Mogadishu en lifði af. Þetta er hans frásögn af atburðinum:
„Fimmtudaginn 3. desember 2009 slasaðist ég í sjálfsmorðssprengjuárás á Shamo hótelinu í Mogadishu.
Banadir háskólinn í Mogadishu bauð mér að vera viðstaddur brautskráningu kl.8 um morguninn. Ég var mættur á réttum tíma ásamt tveimur öðrum læknum og skólastjóra hjúkrunarskóla SOS Barnaþorpanna. Hinir læknarnir voru Dr. Tahlil sem starfar við SOS sjúkrahúsið og læknir frá Sómalílandi sem var í þjálfun á sjúkrahúsi SOS.
Við sátum allir í fimmtu sætaröð en rektor háskólans benti mér á að koma og sitja við hlið hans í fremstu röð sem ég og gerði.
Sprenging
Athöfnin hófst kl.9 og útskrifa átti nema í læknisfræði, tölvunarfræði og kennslu- og uppeldisfræði.
Kl.11 mættu fjórir ráðherrar úr sómölsku ríkisstjórninni. Ég stóð upp fyrir heilbrigðisráðerranum og færði mig aftur um tvær sætaraðir.
Kl.11.30 heyrði ég mikinn hvell. Meira vissi ég ekki!
Ég fann mikinn sársauka í kviðnum (fjölmargar sprengjuagnir sátu fastar í kviðnum), báðum fótleggjum (ég var þó ekki brotinn) og í fingri (ég fingurbrotnaði). Ég féll niður á gólf með fulla meðvitund en það blæddi nokkuð úr kviðnum, handleggjum og fótum. Ég sá fólk deyja í kringum mig en vonaði að einhver myndi hjálpa mér. Allir í fremstu sætaröð dóu! Einnig nokkrir í þriðju röð þar sem ég sat.
Mér tókst að standa á fætur og gekk hægum skrefum í átt að útidyrunum. Ég sá skólastjóra hjúkrunarskólans og kallaði á hann. Hann kom og hjálpaði mér.“
Meðhöndlun á fjórum sjúkrahúsum
Farið var með slasaða á Medina sjúkrahúsið í Mogadishu. Þar var ástand Abdullahi metið en aðrir meira slasaðir gengu fyrir. Þaðan fór hann svo á SOS sjúkrahúsið þar sem hann fékk lyf og gert var að sárum hans.
Daginn eftir buðu Sameinuðu þjóðirnar þeim sem slösuðust í árásinni að fara á sjúkrahús í Nairobi í Keníu, sem Abdullahi þáði. Eftir tíu daga meðhöndlun í Nairobi var flogið með Abdullahi til Sádí Arabíu þar sem agnirnar voru fjarlægðar úr kvið hans. Hann er nú kominn aftur til starfa við SOS sjúkrahúsið í Mogadishu.
Staðráðinn í að hjálpa
„Ég mun halda áfram að starfa í Mogadishu, jafnvel þótt mér bjóðist mörg betur launuð störf víða um heim. Hér í Sómalíu er mikill fjöldi saklauss fólks í hættu, einkum konur og börn. Fólkið skortir mat, hreint drykkjarvatn, þak yfir höfuðið og heilbrigðisþjónustu. Ég vil hjálpa þessu fólki. Ég stundaði nám hér í Mogadishu og borgaði ekkert fyrir – það voru skattgreiðendur sem borguðu. Svo nú er komið að mér að hjálpa þeim.
Ég vona að íbúar Sómalíu fái að upplifa frið sem allra fyrst og að hér verði gott að búa.
Ég vil þakka öllu því góða fólki og góðgerðarfélögum sem enn starfa í Sómalíu þrátt fyrir þá óöld sem hér ríkir. Mig langar sérstaklega að þakka alþjóðasamtökum SOS Barnaþorpanna fyrir að starfa í Sómalíu og gefast ekki upp í þessu stríðsástandi. Og síðast en ekki síst vil ég þakka öllum þeim kennurum sem hér starfa á öllum skólastigum.Takk fyrir.“
Sjá hér frétt um sprengjuárásina frá því í desember.


