• Teikning eftir barn í SOS-barnaþorpi
    Teikning eftir barn í SOS-barnaþorpi

Börnin skrifa jólasveininum

15.12.2008

Útlit er fyrir enn ein annasöm jól hjá jólasveininum. Börnin í SOS-barnaþorpunum um allan heim hafa skrifað honum og borið upp sínar óskir fyrir þessi jól. Hér birtum við bréf þriggja barna í Síerra Leóne til jólasveinsins.

Kæri jólasveinn,

Ég hef heyrt mikið talað um þig og mig langar að bjóða þér heim til mín í jólamat.

Mamma ætlar að búa til sósu úr kassava laufblöðum. Hér í Síerra Leóne borða allir svoleiðis. Þú átt eftir að elska kassava-sósuna. Við krakkarnir skulum passa uppá að nóg verði til af gosdrykkjum, nasli og jólaköku. Við viljum líka leika nokkra jólaleiki með þér.

En heyrðu, hvenær byrjaðir þú að gefa börnum gjafir og af hverju gefur þú bara börnum gjafir? Af hverju fá fullorðnir engar gjafir?

Jólin eru mikil hátíð hér í Síerra Leóne. Sérstaklega fyrir okkur börnin. Mömmur okkar kaupa ný föt og skó á okkur og við stelpurnar fáum skraut í hárið.

Gerðu það, komdu heim til mín – ekki bregðast okkur!

Þín vinkona,

Yandi (stúlka í SOS-barnaþorpinu í Makeni, Síerra Leóne)

 

Kæri jólasveinn,

Teikning eftir barn í SOS-barnaþorpiÞetta er í fyrsta skipti sem ég sendi þér bréf. Núna eru allir að undirbúa jólin. Þú ert örugglega byrjaður að kaupa jólagjafir fyrir öll börnin í heiminum. Ég held að gott fólk gefi þér pening svo þú getir keypt allar gjafirnar fyrir öll börnin sem vilja sjá þig, fá gjafir og leika við þig. Þegar þú kemur í barnaþorpið í Freetown langar mig að skoða síða hvíta skeggið þitt; það er rosalega flott!

Ég er með tillögu. Hvernig væri að byrja að deila út gjöfum fyrir þessi jól í Afríku? Mörg börn í Afríku hafa aldrei hitt þig og hafa aldrei fengið jólagjafir. Viltu gleðja þau eða viltu að þau verði sorgmædd? Ég er viss um að þú viljir gleðja börnin í Afríku. Mörg þeirra hafa upplifað stríð.

Gleðileg jól jólasveinn!

Þín vinkona,

Paulissa (stúlka í SOS-barnaþorpinu í Freetown, Síerra Leóne)

 

Kæri jólasveinn,

Teikning eftir barn í SOS-barnaþorpiHvað segir þú gott? Ég vona að þú segir allt gott. Þú ert örugglega að fara að heimsækja öll börnin af því að jólin eru að koma. Við sem búum á heimilinu fyrir börn með sérstakar þarfir hlökkum mjög mikið til að hitta þig.

Takk fyrir dúkkuna sem þú gafst mér um síðustu jól. Ég á hana ennþá og sef með hana. Þetta var frábær gjöf.

En ég er með gjöf handa þér. Ég vil ekki fá gjafir frá þér án þess að gefa neitt til baka. Ég ætla ekki að segja þér hver gjöfin er, en þú átt eftir að verða ánægður með hana. Ef ég verð sofandi þegar þú kemur, ertu þá til í að vekja mig svo ég geti sýnt þér heimilið mitt?

Þín vinkona,

Aminata (stúlka á heimili fyrir börn með sérstakar þarfir í Freetown, Síerra Leóne)






Þetta vefsvæði byggir á Eplica