Styrktaraðilar
Helstu styrktaraðilar
Fjölmörg fyrirtæki styrkja SOS Barnaþorpin með reglubundnum hætti. Sum styrkja börn í barnaþorpum, önnur eru Skjólvinir SOS og enn önnur styrkja samtökin með öðrum hætti. Ekki má gleyma þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem láta samtökunum vörur eða þjónustu í té á sérkjörum eða jafnvel ókeypis.
Utanríkisráðuneytið hefur styrkt nokkur verkefni á vegum SOS Barnaþorpanna. Árið 2008 ákvað ráðuneytið að fjármagna byggingu og innréttingar eins fjölskylduhúss í nýju barnaþorpi í Botsvana. 2009 kom ráðuneytið að fjármögnun neyðaraðstoðar vegna flóttabarna á Sri Lanka og 2010 styrkti ráðuneytið neyðaraðstoð SOS Barnaþorpanna á Haítí í kjölfar mannskæðs jarðskjálfta og byggingu nýs grunnskóla í A-Kongó. Síðan þá hefur ráðuneytið styrkt nokkur verkefni samtakanna erlendis.
Staukur ehf hefur um margra ára skeið stutt SOS Barnaþorpin og er meðal allra stærstu styrktaraðila samtakanna. Fyrirtækið rekur sælgætissjálfsala og leiktæki um allt land og hafa framlög Stauks dugað fyrir prentun fréttablaðs SOS Barnaþorpanna. Um er að ræða þrjú tölublöð á ári í 11 - 15.000 eintaka upplagi hvert. Þegar þú því verslar sælgæti í sérmerktum SOS staukum eða setur mynt í merkt leiktæki í verslunarmiðstöðvum ertu að styrkja SOS Barnaþorpin.
Bílabúð Benna, umboðsaðili Chevrolet á Íslandi styrkti SOS Barnaþorpin í tilefni af 100 ára afmæli Chevrolet. Með hverjum seldum Chevrolet bíl fylgdi, á afmælisárinu 2011, framlag til SOS Barnaþorpanna í Gambíu. Alls runnu 700.000 krónur til Gambíu af þessu tilefni.
Prentmet hefur um árabil veitt SOS Barnaþorpunum stuðning í formi framúrskarandi þjónustu og góðra afslátta af umbroti og prentun. Nú hefur Prentmet bætt um betur og styrkir starf barnaþorpanna í þágu munaðarlausra og yfirgefinna barna með rausnarlegu fjárframlagi.
Fyrirtækið Creditinfo Ísland styrkir barnaþorp í Vilníus í Litháen með reglulegum framlögum sem nýtast börnunum í þorpinu en fyrirtækið er hluti af Creditinfo Group samstæðunni sem er með starfsemi víða í Evrópu.
Nokkrir Lionsklúbbar hafa tekið að sér börn í SOS Barnaþorpum og einn klúbbur styrkir ákveðið barnaþorp. Styrkir þessir skipta sköpum í lífi þeirra barna sem um ræðir og stendur klúbbunum til boða að fá kynningu á starfsemi SOS Barnaþorpanna auk þess að fá upplýsingar um börnin líkt og aðrir styrktarforeldrar fá.
Sögustund.is opnaði barnasöguvef sinn sumarið 2009 á 60 ára afmælishátíð SOS Barnaþorpanna. Á vefnum má hlaða niður barnasögum og -ævintýrum, bæði innlendum og erlendum. Leikkonan Kristjana Skúladóttir les sögurnar. Hluti ágóðans af síðunni rennur til SOS Barnaþorpanna.
Garðheimar hafa stutt SOS Barnaþorpin með sölu blóma á mæðradaginn o.fl. Stefna fyrirtækisins er að reka náttúruvænt fyrirtæki þar sem fólk getur eytt tímanum og notið þess andrúmslofts sem skapast innan um fjölskrúðugan gróður, stuðla að hagkvæmri markaðssetningu á framleiðslu garðyrkjubænda og veita góða þjónustu byggða á 60 ára reynslu í græna geiranum.

Míra Reykjavík er húsgagnaverslun á netinu og er í samstarfi við SOS Barnaþorpin. Hluti ágóðans af sölu húsgagna hérlendis, rennur aftur til Rajistahn héraðs á Indlandi, þaðan sem húsgöngin eru framleidd. SOS Barnaþorpin starfrækja þorp í héraðinu. Smellið hér til að lesa meira um samstarfið.








