Skjólvinir Fyrirtæki

Skjólvinir styðja Fjölskyldueflingu SOS Barnaþorpanna. 

 

Fyrirtæki geta með mánaðarlegu framlagi tekið þátt í Fjölskyldueflingu SOS Barnaþorpanna. Þau fyrirtæki sem þátt taka verða Skjólvinir SOS Barnaþorpanna og breyta lífum barna sem eiga á hættu að verða aðskilin frá foreldrum og fjölskyldu. Fjármunum frá Skjólvinum er varið til þess að styðja barnafjölskyldur í neyð í Bangladess, Kenía, Perú og Búlgaríu.

Markmið Fjölskyldueflingar SOS er að forða börnum frá aðskilnaði við illa stadda foreldra sína - og hjálpa foreldrunum að mæta þörfum barnanna. Hundruð þúsunda barna og fjölskyldur þeirra fá aðstoð í formi menntunar, heilsugæslu, ráðgjafar, barnagæslu og annarra þátta sem hjálpa þeim að yfirstíga erfiðleika og lifa betra lífi - saman sem fjölskylda.

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að gerast skjólvinir SOS Barnaþorpanna á Íslandi vinsamlega hafi samband við Guðmund Ingva Einarsson, verkefnisstjóra  á

guðmundur(hjá)sos.is.

Nánar um verkefnið

Fjölskylduefling SOS Barnaþorpa

Fréttir

VB Landbúnaður gerist Skjólvinur SOS

VB Landbúnaður

VB Landbúnaður hefur bæst í hóp þeirra fyrirtækja sem styrkja Fjölskyldueflingu SOS Barnaþorpanna.

 

Sjá fleiri


Styrktaraðilar

VB Landbúnaður

VB Landbúnaður
 

Kaupfélag Skagfirðinga

KS
 

Íslyft ehf

islyftsteinbock2
 

Axis Húsgögn ehf

logo-Axis-2
 

Sjá fleiri




Þetta vefsvæði byggir á Eplica