Sendiherrar SOS
Sendiherrar SOS Barnaþorpanna á Íslandi eru þrír: Hermann Hreiðarsson, Hera Björk Þórhallsdóttir og Hermann Gunnarsson.
Hlutverk sendiherra SOS er m.a. að vekja athygli á starfsemi SOS Barnaþorpanna, koma að viðburðum og/eða kynningum í tengslum við starf samtakanna og halda gildum fjölskyldunnar og réttindamálum barna á lofti eftir fremsta megni.
Hermann Hreiðarsson
Hermann hefur verið sendiherra SOS Barnaþorpanna frá árinu 2005. Hermann hefur verið atvinnumaður í knattspyrnu í yfir áratug og spilar nú með Coventry City í ensku B-deildinni. Hann hefur einnig spilað með íslenska landsliðinu um árabil og er fyrirliði þess.
Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk var útnefnd sendiherra SOS Barnaþorpanna árið 2009. Hún hefur ítrekað sungið sig inn í hjörtu landsmanna á undanförnum árum og gildir þá einu hvort um sé að ræða hljómplötur, leiksýningar, söngvakeppnir eða sjónvarpsþætti. Hera starfar sem söngkona og söngkennari.
Hermann Gunnarsson
Hemmi Gunn var útnefndur sendiherra SOS Barnaþorpanna árið 2009. Hann er einn ástsælasti fjölmiðlamaður okkar Íslendinga. Einnig gerði hann garðinn frægan sem bæði sem handbolta- og knattspyrnumaður. Þá kannast þjóðin við hann sem söngvara, skemmtikraft og fararstjóra svo fátt eitt sé nefnt.
