SOS á Íslandi
Sendiherrar SOS-barnaþorpanna á Íslandi
Sendiherrar SOS-barnaþorpanna á Íslandi eru þrír: Hermann Hreiðarsson, Hera Björk Þórhallsdóttir og Hermann Gunnarsson.
Hlutverk sendiherra SOS er m.a. að vekja athygli á starfsemi SOS-barnaþorpanna, koma að viðburðum og/eða kynningum í tengslum við starf samtakanna og halda gildum fjölskyldunnar og réttindamálum barna á lofti eftir fremsta megni.

Hermann Hreiðarsson
Hermann hefur verið sendiherra SOS-barnaþorpanna frá árinu 2005. Hermann hefur verið atvinnumaður í knattspyrnu í yfir áratug og spilar nú með Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur einnig spilað með íslenska landsliðinu um árabil og er fyrirliði þess.

Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk var útnefnd sendiherra SOS-barnaþorpanna árið 2009. Hún hefur ítrekað sungið sig inn í hjörtu landsmanna á undanförnum árum og gildir þá einu hvort um sé að ræða hljómplötur, leiksýningar, söngvakeppnir eða sjónvarpsþætti. Hera starfar sem söngkona og söngkennari.
Hermann Gunnarsson
Hemmi Gunn var útnefndur sendiherra SOS-barnaþorpanna árið 2009. Hann er einn ástsælasti fjölmiðlamaður okkar Íslendinga. Einnig gerði hann garðinn frægan sem bæði sem handbolta- og knattspyrnumaður. Þá kannast þjóðin við hann sem söngvara, skemmtikraft og fararstjóra svo fátt eitt sé nefnt.

