SOS á Íslandi
Skipulag og fjármál SOS Barnaþorpanna
SOS-barnaþorpin á Íslandi voru stofnuð árið 1989. Þau eru einkarekin félagsleg hjálparsamtök með rætur í hinni alþjóðlegu barnahjálp, SOS-Kinderdorf International, sem hafa höfuðstöðvar í Innsbruck í Austurríki. SOS-barnaþorpin eru stærstu einkareknu barnahjálparsamtökin í heiminum sem sérhæfa sig í að útvega munaðarlausum og yfirgefnum börnum heimili, móður og systkini.
Fjármálin eru undir reglulegu eftirliti fjármálanefndar SOS-kinderdorf International, stjórna og viðurkenndra endurskoðendaskrifstofa. SOS-barnaþorpin eru þekkt fyrir lág útgjöld vegna stjórnunar. SOS-barnaþorpin á Íslandi leggja áherslu á að eyða ekki peningum í dýrar auglýsingaherferðir. Þess í stað er lögð áhersla á upplýsingar og virka styrktaraðila víðs vegar um landið.
Ársreikningur SOS Barnaþorpanna 2009
Í stjórn og fulltrúaráði SOS-barnaþorpanna á Íslandi sitja:
Ulla Magnússon formaður
Garðar Ingvarsson stjórnarmaður
Guðmundur Bjarni Harðarson stjórnarmaður
Ingibjörg Bjarnardóttir hdl. varakona í stjórn
Kristján Þ. Davíðsson varamaður í stjórn
Ásgeir Jóhannesson fulltrúaráðsmaður
Auður Halldórsdóttir fyrrv. Framkvæmdarstýra, fulltrúaráðskona
Lára V. Júlíusdóttir hrl. fulltrúaráðskona
Ólafur Örn Ingólfsson fulltrúaráðsmaður
Starfsmenn SOS-barnaþorpanna eru:
Ragnar Schram - Framkvæmdastjóri - ragnar(hjá)sos.is
Ulla Magnusson - Starfandi stjórnarformaður - ulla(hjá)sos.is
Díana Hlöðversdóttir - Þjónustufulltrúi - diana(hjá)sos.is
---
Þorsteinn Garðarsson - Kerfisfræðingur frá SK Hugbúnaði ehf
Guðmundur J. Þorvaldsson - Endurskoðandi

