Ég vil styrkja
Með því að styrkja SOS Barnaþorpin ert þú að nýta þér yfir sextíu ára reynslu samtakanna við að hlúa að umkomulausum börnum og gera heiminn betri.
SOS-styrktarforeldri
Þú greiðir fasta upphæð á mánuði með ákveðnu umkomulausu barni sem fengið hefur heimili og móður í SOS Barnaþorpi. Þú færð reglulega myndir og fréttir af barninu. Þú getur sent barninu bréf og jafnvel heimsótt það.SOS-barnaþorpsvinur
Með því að gerast barnaþorpsvinur tekurðu þátt í að gera líf barnanna í þorpinu enn betra. Fast mánaðarlegt framlag þitt nýtist m.a. til viðhalds bygginga og húsbúnaðar. Tvisvar á ári færðu skýrslu um lífið og helstu atburði í SOS Barnaþorpinu þínu.
SOS-skjólvinur
Sem skjólvinur styrkir þú Fjölskyldueflingu SOS með föstum mánaðarlegum framlögum og kemur þannig í veg fyrir aðskilnað barna og foreldra. Skjólvinir fá fréttabréf SOS þrisvar á ári.
Gefa framlag
Þú getur styrkt starf samtakanna með frjálsum framlögum þegar þér hentar. Þannig tekur þú þátt í að skapa þann fjárhagslega grunn sem gerir SOS-samtökunum kleift að byggja ný barnaþorp, sinna uppbygginu og neyðaraðstoð og halda úti umbótaverkefnum um heim allan.
Erfðagjöf
SOS Barnaþorpin hafa veitt fjölda umkomulausra barna nýtt líf vegna erfðagjafa frá stuðningsaðilum. Slíkum gjöfum getur fylgt mikill ávinningur bæði fyrir gefendur og þiggjendur. Viljir þú kynna þér slíkar gjafir biðjum við þig um að hafa samband við Ragnar eða Ullu á skrifstofu SOS Barnaþorpanna í síma 564 2910.
Sjáir þú þér ekki fært að styrkja SOS Barnaþorpin með fjárframlögum viljum við engu að síður bjóða þér að fylgjast með starfi samtakanna og þiggja mánaðarlegt rafrænt fréttabréf okkar þér að kostnaðarlausu.
