Gerast styrktarforeldri
Að gerast styrktarforeldri barns
Hvert barn í SOS Barnþorpi er styrkt af nafngreindum styrktarforeldrum. Framlag hvers styrktarforeldris er kr. 3.000 á mánuði. Fjöldi styrktarforeldra fyrir hvert barn ræðst af framfærslukostnaði í hverju landi fyrir sig. Reynt er að sjá til þess að styrktarforeldrar séu af ólíku þjóðerni.
- Í gegnum styrktarþáttinn upplifa börnin að það er til fólk sem hefur áhuga á lífi þeirra og þroska. Algengt er að SOS-börnin okkar eigi sér hvorki fjölskyldu né nafn þegar þau koma í okkar umsjá. SOS Barnaþorpin veita þeim fjölskyldu, það er, bræður og systur ásamt móður, sem veitir þeim öryggi allan sólarhringinn.
- Sem styrktarforeldri barns færð þú sendar upplýsingar um þitt barn ásamt mynd. Þú getur jafnt og þétt fylgst með þroska þess. Með þinni hjálp munu börnin í stað örvæntingar, öðlast von og hafa væntingar varðandi framtíðina.

