Hvernig get ég hjálpað

Þú ...

... getur hjálpað börnum í neyð. SOS Barnaþorpin og skjólstæðingar þeirra hafa alltaf verið háð stuðningi einstaklinga og verða það áfram. Með þínu framlagi veitir þú munaðarlausum og yfirgefnum börnum hjálp sem þau búa að alla ævi.

Þú getur lagt SOS Barnaþorpunum lið með eftirfarandi hætti:

Neyðaraðstoð á Haítí

Reikningur: 0701–26–003116 - kt. 500289-2529

SOS-styrktarforeldri

StúlkaMeð því að gerast styrktarforeldri tekur þú þátt í að gefa foreldralausu barni nýja framtíð. Þú greiðir fasta upphæð á mánuði og færð reglulega myndir og fréttir af barninu ásamt fréttablaði SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

SOS-barnaþorpsvinur

F0401-1-3_HR1Með því að gerast barnaþorpsvinur tekurðu þátt í að gera líf barnanna í þorpinu enn betra. Og nú vantar þorpin okkar á Haítí stuðning. Fast mánaðarlegt framlag þitt nýtist m.a. til viðhalds bygginga og húsbúnaðar. Tvisvar á ári færðu skýrslu um lífið og helstu atburði í SOS Barnaþorpinu þínu. Einnig fá barnaþorpsvinir fréttabréf SOS þrisvar á ári.

SOS-skjólvinur

tpa_picture_33981Sem skjólvinur styrkir þú Fjölskyldueflingu SOS með föstum mánaðarlegum framlögum og kemur þannig í veg fyrir aðskilnað barna og foreldra. Skjólvinir fá fréttabréf SOS þrisvar á ári.

SOS-barnavinur

2040_0927_SOSmother_chad1Sem barnavinur styrkir þú starf samtakanna með frjálsum framlögum þegar þér hentar og átt þannig þátt í að skapa þann fjárhagslega grunn sem gerir SOS-samtökunum kleift að byggja ný barnaþorp ásamt því að sinna uppbygginu og halda úti umbótaverkefnum um heim allan. Barnavinir fá fréttabréf SOS þrisvar á ári.


Sjáir þú þér ekki fært að styrkja SOS Barnaþorpin með fjárframlögum viljum við engu að síður bjóða þér að fylgjast með starfi samtakanna og þiggja mánaðarlegt rafrænt fréttabréf okkar þér að kostnaðarlausu. Skráning hér.


Skrifstofa SOS Barnaþorpanna á Íslandi tekur við fyrirspurnum varðandi starf samtakanna. Netfangið er sos@sos.is og síminn 564 2910.