Uppvöxtur SOS-barna

Uppvöxtur SOS barna

Starf SOS Barnaþorpanna byggir á fjórum grunnatriðum: Móður, systkinum, heimili og þorpssamfélaginu. Til að útskýra mikilvægi þessara þátta langar okkur að segja þér örlítið nánar frá lífi nokkurra SOS-barna. Til að vernda einkalíf barnanna okkar, þá höfum við breytt nöfnum og notað myndir af öðrum SOS-börnum.
 
tpa_avmedia_19741

Að flytjast í SOS Barnaþorp

Börn sem send eru til SOS Barnaþorpanna hafa langflest upplifað miklar hörmungar á sinni stuttu ævi. Þau eru oft á tíðum ráðvillt og uppfull af sorg. Hægt og bítandi og með mikilli þolinmæði ná SOS-mæður og SOS-systkini til nýja barnsins og hjálpa því að koma út úr skel sinni, læra að treysta og hlæja á ný. Smám saman öðlast þau sjálfsöryggi og eignast vini. Oft á tíðum tekur það langan tíma fyrir sárin á sál lítils barns að gróa, en með öryggi, ást og umhyggju er allt mögulegt.

Lesa meira
 
Sucre_Bolivia

Að búa í SOS Barnaþorpi

Ferðin getur stundum verið mjög löng, með mörgum stoppum á leiðinni. En að lokum koma börnin til SOS Barnaþorpanna. Það er hér sem þau finna fyrir kærleiksríka SOS-móður, bræður og systur og það skjól sem fæst með því að eiga heimili. Nú getur eðlilegt líf hafist með öllu sem það inniheldur.

Lesa meira
 
N0109-1-4_HR1

Að yfirgefa þorpið

Börn verða að unglingum. Þau vaxa úr grasi, langar til að standa á eigin fótum, gera hluti á eigin forsendum, fara út á vinnumarkaðinn eða halda áfram að mennta sig. Unglingarnir eru annað hvort áfram í SOS Barnaþorpinu eða flytjast í ungmennaheimili og búa þar, þangað til þau eru reiðubúin að fara út í lífið og standa á eigin fótum.

Lesa meira
 
N0109-1-8_HR1

Að halda sambandi

Sá dagur kemur í lífi hvers SOS-ungmennis að tímabært er að yfirgefa barnaþorpið eða ungmennaheimilið. Flest þeirra halda sambandi við SOS-móður sína og systkini eftir að þau yfirgefa SOS.

Lesa meira
 
tpa_picture_23320

Samhentur hópur

Árangursríkt starf SOS Barnaþorpanna byggist á góðu samstarfi samhents hóps sérhæfðs starfsfólks: Forstöðumanni, til að stýra þeim þáttum er snúa að skipulagi þorpsins í heild sinni og SOS móður sem er miðpunkturinn í lífi barnanna sem okkur er treyst fyrir. Lesa meira