SOS-barnaþorpin
Hvað eru SOS Barnaþorpin?
Fyrst og fremst eru SOS Barnaþorpin barnahjálp sem veitir munaðarlausum og yfirgefnum börnum staðgengil fyrir þá fjölskyldu sem þau hafa misst. SOS-móðirin gegnir þar lykilhlutverki.
SOS Barnaþorpin eru nú orðin fleiri en 500 talsins. Um er að ræða lítil samfélög eða húsaþyrpingar sem samanstanda af heimilum nokkurra fjölskyldna. Þar alast börnin upp eins og systkini í venjulegum fjölskyldum, á öruggum samastað - á heimili.

Í hverri SOS fjölskyldu eru oftast sex til tíu börn á mismunandi aldri og af báðum kynjum. Höfuð fjölskyldunnar er SOS-móðirin sem hefur hlotið menntun í að sinna börnum sem mörg hver hafa upplifað miklar hörmungar. Hún sér um að börnin búi við öryggi og ást.
Í hverju SOS Barnaþorpi eru oftast 10-15 fjölskylduhús, auk sameiginlegra bygginga, svo sem leikskóla, skóla, unglingaheimila og heilsugæslustöðva. Ef ekki er SOS grunnskóli í barnaþorpinu sækja börnin hverfisskólann ásamt börnunum í nágrenninu. Búið er að byggja um 200 SOS grunnskóla víða um heiminn. Alls stunda þar yfir 100.000 nemendur nám.
SOS Barnaþorpin starfa óháð trúarbrögðum.
SOS Barnaþorpin unnu OFID verðlaunin árið 2007 fyrir að vera öflug barnahjálp og stuðla að velferð barna í heiminum. Það er OPEC, samband olíuútflutningsríkja, sem veitir verðlaunin árlega fyrir alþjóðlega þróun.


