Fyrirtæki
Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja
...
SOS Barnaþorpin eru frjáls mannúðar- og hjálparsamtök, stofnuð árið 1949 og hafa því yfir 60 ára reynslu af því að vinna að velferð barna um allan heim. Vegna mikillar útbreiðslu og jákvæðrar ímyndar er starf samtakanna í þágu barna afar álitlegur kostur fyrir þau fyrirtæki sem vilja sýna samfélagslega ábyrgð í verki.
SOS Barnaþorpin bjóða fyrirtækjum að fjárfesta í framtíð munaðarlausra og yfirgefinna barna í 132 löndum.
Fyrirtæki getur t.a.m. tekið að sér að styrkja nokkur börn í ákveðnu þorpi, greitt fyrir endurbætur á skóla, kostað byggingu eins fjölskylduhúss í nýju barnaþorpi, fjármagnað verknám fyrir foreldra sem eiga það á hættu að missa börn sín vegna fátæktar, eða kostað gerð knattspyrnuvallar. Möguleikarnir á að gera líf barna betra í samstarfi við SOS Barnaþorpin eru endalausir.
En kemst framlagið til skila? SOS Barnaþorpin hafa áratuga reynslu af því að hjálpa börnum með fjármagni frá þriðja aðila og hafa unnið sér inn traust á því sviði. Framlagið kemst alltaf til skila og við sendum fyrirtækinu reglulega upplýsingar um framgang verkefnisins. Þá er fyrirtækinu frjálst að senda fulltrúa sinn á vettvang og kynna sér þannig með eigin augum hvernig framlag fyrirtækisins hefur nýst.
Hafi þitt fyrirtæki áhuga á að leggja þessu góða málefni lið og kynna sér hvaða leiðir eru í boði, hafðu þá samband við okkur í síma 564 2910 eða sendu Ragnari Schram tölvupóst á ragnar(hjá)sos.is.
Hvernig væri t.d. að fá heimsókn á kaffistofuna þar sem starfsemi SOS Barnaþorpanna er kynnt í máli og myndum?
Aðkoma starfsfólks
Þá eru ýmsir möguleikar í boði fyrir þau fyrirtæki sem vilja vinna að ákveðnu verkefni með SOS Barnaþorpunum og virkja starfsfólk sitt í þeim tilgangi. Slík þátttaka getur haft jákvæð áhrif á starfsandann í fyrirtækinu og bætt samskipti yfir- og undirmanna.
Þegar allir keppa að sama markinu og sjá að þeir geta náð markmiðum sínum og hjálpað um leið börnum í neyð myndast góður andi innan fyrirtækisins sem vart verður metinn til fjár.
Fyrirtækinu gefst kostur á að senda fulltrúa sinn á vettvang og sjá með eigin augum hvernig verkefninu vindur fram.
Væri þetta eitthvað fyrir þitt fyrirtæki? Hafðu þá samband við okkur í síma 564 2910 eða sendu Ragnari Schram tölvupóst á ragnar(hjá)sos.is.
Styrktaraðilar
Fjölmörg fyrirtæki styrkja SOS Barnaþorpin með reglubundnum hætti. Sum styrkja börn í barnaþorpum, önnur eru Skjólvinir SOS og enn önnur styrkja samtökin með öðrum hætti. Ekki má gleyma þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem láta samtökunum vörur eða þjónustu í té á sérkjörum eða jafnvel ókeypis.
Utanríkisráðuneytið hefur styrkt nokkur verkefni á vegum SOS Barnaþorpanna. Árið 2008 ákvað ráðuneytið að fjármagna byggingu og innréttingar eins fjölskylduhúss í nýju barnaþorpi í Botsvana. 2009 kom ráðuneytið að fjármögnun neyðaraðstoðar vegna flóttabarna á Sri Lanka og í ár styrkti ráðuneytið neyðaraðstoð SOS Barnaþorpanna á Haítí í kjölfar mannskæðs jarðskjálfta.
Staukur ehf hefur um margra ára skeið stutt SOS Barnaþorpin og telst meðal stærstu styrktaraðila samtakanna. Fyrirtækið rekur sælgætissjálfsala og leiktæki um allt land og hafa framlög Stauks dugað fyrir prentun fréttablaðs SOS Barnaþorpanna. Um er að ræða þrjú tölublöð á ári í 11 - 15.000 eintaka upplagi hvert. Þegar þú því verslar sælgæti í sérmerktum SOS staukum eða setur mynt í merkt leiktæki í verslunarmiðstöðvum ertu að styrkja SOS Barnaþorpin.
Prentmet hefur um árabil veitt SOS Barnaþorpunum stuðning í formi framúrskarandi þjónustu og góðra afslátta af umbroti og prentun. Nú hefur Prentmet bætt um betur og styrkir starf barnaþorpanna í þágu munaðarlausra og yfirgefinna barna með rausnarlegu fjárframlagi.
Fyrirtækið Creditinfo Ísland styrkir barnaþorp í Vilníus í Litháen með reglulegum framlögum sem nýtast börnunum í þorpinu en fyrirtækið er hluti af Creditinfo Group samstæðunni sem er með starfsemi víða í Evrópu.
Nokkrir Lionsklúbbar hafa tekið að sér börn í SOS Barnaþorpum og einn klúbbur styrkir ákveðið barnaþorp. Styrkir þessir skipta sköpum í lífi þeirra barna sem um ræðir og stendur klúbbunum til boða að fá kynningu á starfsemi SOS Barnaþorpanna auk þess að fá upplýsingar um börnin líkt og aðrir styrktarforeldrar fá.
Sögustund.is opnaði barnasöguvef sinn sumarið 2009 á 60 ára afmælishátíð SOS Barnaþorpanna. Á vefnum má hlaða niður barnasögum og -ævintýrum, bæði innlendum og erlendum. Leikkonan Kristjana Skúladóttir les sögurnar. Hluti ágóðans af síðunni rennur til SOS Barnaþorpanna.

Garðheimar hafa stutt SOS Barnaþorpin með sölu blóma á mæðradaginn o.fl. Stefna fyrirtækisins er að reka náttúruvænt fyrirtæki þar sem fólk getur eytt tímanum og notið þess andrúmslofts sem skapast innan um fjölskrúðugan gróður, stuðla að hagkvæmri markaðssetningu á framleiðslu garðyrkjubænda og veita góða þjónustu byggða á 60 ára reynslu í græna geiranum.

