A-Afríka: SOS hjálpa við hörmulegar aðstæður
Pólitískur óstöðugleiki, veikir innviðir og gríðarlegt umfang vandans koma í veg fyrir að þurfandi fái hjálp á þurrkasvæðunum í A-Afríku. Reynsla SOS Barnaþorpanna og áunnið traust gerir samtökunum nú kleift að ná til hinna þurfandi.
SOS Barnaþorpin á Íslandi standa ekki fyrir landssöfnun vegna þessa en styrktaraðilum samtakanna býðst að styðja neyðaraðstoð SOS í Austur Afríku með því að leggja inn á reikning: 0130-26-9049. Kennitala SOS Barnaþorpanna er 500289-2529.Þurrkarnir eru þeir verstu sem Eþíópía, Kenía, Sómalía og Djíbútí hafa séð í yfir hálfa öld. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum eiga 11.6 milljónir manna á hættu að deyja úr hungri. Heilu fjölskyldurnar og samfélögin yfirgefa heimili sín í örvæntingafullri leit að mat og vatni.
Pólitískur óstöðugleiki og veikir innviðir viðkomandi samfélaga auka enn á vandann. Mitt í þessum aðstæðum, sem vart gerast erfiðari, sinna SOS Barnaþorpin neyðaraðstoð og leggja grunninn að enn frekari aðstoð í þessum löndum.
Sómalía: Heilsugæslustöðvar í flóttamannabúðum
Ástandið er hvað verst í Sómalíu. Í Bakool og Neðri Shabelle héröðum einum og sér eru 3.7 milljónir manna í þörf fyrir aðstoð. Um 6.000 fjölskyldur hafa komið sér fyrir í Badbado flóttamannabúðunum í Dharkenley héraði. SOS Barnaþorpin settu upp heilsugæslustöð í búðunum þann 24. júlí sl. og síðan þá hafa yfir 2.000 manns fengið þar nauðsynlega aðhlynningu; flestir eru börn og ófrískar konur. Meira en helmingur skjólstæðinganna voru börn undir fimm ára aldri.
Fjöldi umkomulausra barna í A-Afríku vantar Styrktarforeldra. Þú getur gefið einu barni gott heimili og góða framtíð í SOS Barnaþorpi. Nánar.
Aðgengi að lyfjum nauðsynlegt
Flesta sjúkdómana er hægt að meðhöndla mjög auðveldlega með réttum lyfjum, en erfitt getur reynst að nálgast lyfin. Sjúkrahús SOS Barnaþorpanna í Mogadishu hefur verið starfrækt í 20 ár og sér heilsugæslustöðinni í flóttamannabúðunum fyrir öllum nauðsynlegum lyfjum sem og læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, lyfjafræðingum og öðru hjálparstarfsfólki.
Sjálft SOS sjúkrahúsið hefur þegar aukið umfang næringarstöðvar sinnar í Mogadishu sem sérhæfir sig í meðhöndlun barna sem eru nær dauða en lífi vegna vannæringar. Þar voru áður 24 rúm en nú eru þau 60.
Reynsla og traust
Það er óhætt að fullyrða að sú reynsla og það traust sem SOS Barnaþorpin hafa áunnið sér í Austur Afríku á undanförnum áratugum kemur sér vel nú í þeim hörmungum sem geisa á svæðinu. Flest starfsfólk SOS í A-Afríku hefur áður komið að umfangsmikilli neyðaraðstoð og veit hvernig best er að bera sig að.
Áratuga gott samstarf við yfirvöld í löndunum og önnur hjálparsamtök hafa liðkað til fyrir hjálparstarfi SOS þannig að fólk í neyð fær hjálpina fyrr en ella.
Umfang hjálparstarfsins eykst
Á næstu dögum og vikum munu SOS Barnaþorpin setja upp fleiri heilsugæslustöðvar í fleiri stórum flóttamannabúðum. Starfsfólk samtakanna í Keníu og Eþíópíu undirbýr nú umfangsmikla flutninga á matvælum og öðrum hjálpargögnum til þeirra sem mest líða á hverjum stað.
Þurrkar æ algengari
Því miður hafa íbúar A-Afríku mikla reynslu af þurrkum. Undanfarið hafa þurrkarnir þó orðið lengri og algengari en áður. Sagan sýnir að miklir þurrkar hafa átt sér stað u.þ.b. einu sinni á hverjum áratug en nú sjáum við mannskæða þurrka á tveggja ára fresti.
Fjöldi umkomulausra barna í A-Afríku vantar Styrktarforeldra. Þú getur gefið einu barni gott heimili og góða framtíð í SOS Barnaþorpi. Nánar.
