Fréttasafn
Frá nýja SOS Barnaþorpinu í Grikklandi
Frá nýja SOS Barnaþorpinu í Grikklandi

Nýtt SOS Barnaþorp í Grikklandi

8.6.2011

Þriðja SOS Barnaþorpið í Grikklandi hefur verið tekið í notkun í úthverfi Alexandroupolis. 40 áður umkomulaus börn hafa fengið heimili og SOS-móður barnaþorpinu.

 

Nýja barnaþorpið er ekki aðeins fyrir munaðarlaus og yfirgefin börn í sex fjölskylduhúsum, heldur mun það einnig aðstoða börn og fjölskyldur í nágrenninu með sálfræðiráðgjöf, talkennslu og tómstundum. Einnig er dagheimili á staðnum fyrir allt að 30 börn með sérþarfir.

Aldrei áður hafa samtökin tekið í notkun barnaþorp sem sameinar langtíma félagsleg úrræði fyrir umkomulaus börn og skemmri tíma úrræði fyrir almenning.

Nýverið hættu SOS Barnaþorpin í Grikklandi að þiggja stuðning styrktarforeldra frá öðrum löndum og fjármagna þau nú allt sitt hjálparstarf innanlands.

 

map-greece-en




Þetta vefsvæði byggir á Eplica