Samstarf til góðra verka
SOS Barnaþorpin á Íslandi og Bílabúð Benna hafa gert með sér samstarfssamning í tilefni af 100 ára afmæli Chevrolet bílaframleiðandans.
Samningurinn felur það í sér að með hverjum seldum Chevrolet, á afmælisárinu 2011, fylgir framlag frá Bílabúð Benna. Féð rennur beint til SOS Barnaþorpanna í Gambíu, sem er fátækt smáríki í vestanverðri Afríku.
Tvö SOS Barnaþorp eru í Gambíu og búa þar um 240 áður umkomulaus börn. Einnig reka samtökin eitt ungmennaheimili í landinu, tvo leikskóla, þrjá grunnskóla, tvo verknámsskóla, eina samfélagsmiðstöð og eina heilsugæslu. Á síðasta ári voru skjólstæðingar SOS í Gambíu yfir 10.000 talsins.
SOS Barnaþorpin eru sjálfstæð barnahjálparsamtök sem veita munaðarlausum og yfirgefnum börnum heimili, móður, uppeldi og menntun, ásamt því að styðja barnafjölskyldur í neyð.

Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnarsdóttir hjá Bílabúð Benna og Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi, handsala samstarfssamning.

Nánar um SOS Barnaþorpin í Gambíu:
