Fréttasafn
Garðheimar

Blómakaupendur greiða nám tveggja SOS-mæðra

30.5.2012

SOS Barnaþorpin og Garðheimar tóku höndum saman á mæðradeginum, þann 13. maí, og söfnuðu fé til menntunar SOS-mæðra. Af hverjum seldum mæðradagsvendi runnu 100 krónur til málefnisins.

 

Styrktaraðilar SOS Barnaþorpanna og viðskiptavinir Garðheima í Mjódd tóku samstarfinu vel og samtals söfnuðust um 85.000 krónur. Sú upphæð dugar til að standa straum að bóklegu námi tveggja SOS-mæðra í Afríku, en slíkt nám tekur þrjá mánuði í mæðraskóla SOS Barnaþorpanna.

Að bóklega náminu loknu þurfa svo væntanlegar SOS-mæður að stunda 21 mánaða starfsnám í barnaþorpi áður en þær fá að ganga umkomulausum börnum í móðurstað.

SOS-mæður taka að sér munaðarlaus og yfirgefin börn og ala þau upp sem sín eigin börn við mannsæmandi aðstæður í SOS Barnaþorpum í yfir hundrað löndum.

SOS-mæður framtíðarinnar læra m.a. að sauma og gera við föt.

SOS-mæður framtíðarinnar læra m.a. að sauma og gera við föt




Þetta vefsvæði byggir á Eplica