Haítí: 33 "munaðarlaus" börn snúa aftur til foreldra sinna
33 börn sem hópur Bandaríkjamanna reyndi að fara með frá Haítí til Dóminíska lýðveldisins og dvöldu í SOS Barnaþorpinu í Port-au-Prince munu snúa aftur til foreldra sinna í dag, 17. mars.
Lögregla kom með börnin í barnaþorpið þann 30. janúar samkvæmt ákvörðun barnaverndaryfirvalda á Haítí (IBERS - Institut du Bien Etre Sociale et De Recherches) en þá höfðu tíu Bandaríkjamenn verið handteknir fyrir að reyna að koma börnunum úr landi við vafasamar aðstæður og án tilskilinna leyfa.
Á meðan börnin, sem eru á aldrinum 4 mánaða til 12 ára, bjuggu á heimilum í SOS Barnaþorpinu unnu yfirvöld hörðum höndum að því að grennslast fyrir um bakgrunn barnanna og staðfesta tengsl við yfirlýsta ættingja. Sú vinna var tímafrek en er nú lokið og geta öll börnin snúið heim til foreldra sinna.

Reynt er að stytta börnunum stundir með leik og skemmtun
„Komið hefur í ljós að öll börnin 33 eiga foreldra á lífi. Við hjá SOS Barnaþorpunum teljum að í flestum tilvikum sé best fyrir börn að njóta umönnunar innan eigin fjölskyldu. Fátækt má ekki vera ástæða þess að börn eru aðskilin foreldrum sínum. Við erum því mjög sátt við þá ákvörðun yfirvalda að sameina börnin fjölskyldum sínum á ný,“ segir Celigny Darius framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Haítí.
Meðan á dvöl barnanna í barnaþorpinu stóð tóku þau þátt í daglegu lífi barnaþorpsins og var vel tekið af SOS-fjölskyldunum þar. Systkini og frændsystkini fengu að búa saman og öll börnin fengu læknisþjónustu og hjálp sálfræðinga og félagsráðgjafa SOS.
Eitt þeirra barna sem reynt var að koma úr landi er hinn níu ára gamli Michael. „Ég hef eignast góða vini hérna og fannst gaman að spila fótbolta, en ég sakna mömmu og það verður gott að koma heim.“

Starfsmaður SOS tekur lagið ásamt nokkrum börnum
„Þetta mál hefur vakið athygli heimsins á stöðu barna hverra foreldrar sjá enga aðra leið út úr neyð sinni en að láta frá sér börn sín. Jafnvel fyrir jarðskjálfann voru margar illa staddar fjölskyldur á Haítí í mikilli hættu. Og nú þegar aðgengi fólks að heilsugæslu, matvælum, vatni, skjóli og nauðsynlegri þjónustu minnkar eykst hættan á aðskilnaði barna og foreldra. Það er gríðarlega mikilvægt að hjálparsamtök reyni að koma í veg fyrir slíkan aðskilnað með því að tryggja að fjölskyldur hafi aðgang að helstu nauðsynjum,“ segir Celigny Darius.
Yfir 400 börn sem annað hvort eru munaðarlaus eða ekki er vitað um afdrif foreldra þeirra hafa fengið skjól í SOS Barnaþorpinu í Port-au-Prince eftir skjálftann. Verið er að kanna aðstæður hvers og eins barns og er það skráð í sameiginlegan gagnagrunn yfirvalda og hjálparstofnana til að hjálpa til við að finna ættingja. Nú um miðjan mars hafa SOS Barnaþorpin fundið foreldra og/eða nákomna ættingja 65 barna og staðið fyrir endurfundum þeirra.
Þá bjóða SOS Barnaþorpin á Haítí 12.500 börnum upp á heitan mat á hverjum degi á skjálftasvæðinu.
