Neyðaraðstoð í Níger
SOS Barnaþorpin í Níger hafa ákveðið að hefja neyðaraðstoð til að hjálpa þúsundum barna og fjölskyldum þeirra en hungursneyð vofir yfir um helmingi landsmanna.
Ákveðið hefur verið að veita neyðaraðstoð í því héraði sem verst hefur orðið úti, Tahoua. Ráðgert er að aðstoðin standi yfir í rúmt hálft ár og að um 10.000 börn og fjölskyldur þeirra fái aðstoð. Aðstoðin mun fyrst og fremst ná til:
- Fjölskyldna þar sem foreldri hefur látist úr eyðni
- Einstæðra mæðra og barna þeirra
- Fjölskyldna með andlega eða líkamlega fötluð börn
Miklir þurrkar undanfarið hafa leitt til uppskerubrests og gera yfirvöld ráð fyrir að um sjö milljónir landsmanna muni búa við nokkurn eða alvarlegan matarskort á næstunni verði ekkert að gert. Yfirvöld hafa lofað að taka á málinu en ótryggt stjórnmálaástand og valdarán hersins í febrúar hafa ekki hjálpað til við að leysa vandann.
Níger (í norðurhluta Afríku) er eitt fátækasta ríki heims og býr ekki yfir miklum náttúruauðlindum. Íbúar eru um 13 milljónir og flestir búa í dreifbýli og byggja afkomu sína á jarðrækt og búfjárrækt. Um helmingur landsmanna er undir 15 ára aldri.
SOS Barnaþorpin hafa starfað í Níger frá 1990 og reka þar tvö barnaþorp, tvo leikskóla, tvo grunnskóla og tvær samfélagsmiðstöðvar. Samtökin stóðu fyrir umfangsmikilli neyðaraðstoð í Níger árið 2005.

