Fréttir

Nokkur ungmenni í barnaþorpinu í Concepcion hafa þurft á áfallahjálp að halda eftir skjálftann.
Nokkur ungmenni í barnaþorpinu í Concepcion hafa þurft á áfallahjálp að halda eftir skjálftann.

Chile: áfallahjálp og matargjafir

10.3.2010

Þrátt fyrir að enginn í SOS Barnaþorpunum í Chile hafi slasast í jarðskjálftanum mikla á dögunum má segja að slys hafi orðið á sálum bæði barna og starfsfólks.

Yfirstjórn SOS í Chile leitaði til háskólans í Concepcion eftir aðstoð sálfræðinga sem brugðust skjótt við og veittu bæði börnum og starfsfólki þorpsins áfallahjálp. SOS-mæðurnar fá sérstakan stuðning, enda mæðir gjarnan mest á þeim þegar börnunum líður illa.

Í Concepcion hefur starfsfólk SOS staðið fyrir matvæladreifingu til illa staddra nágranna barnaþorpsins. Um 600 börn í borginni og fjölskyldur þeirra fá matvælaaðstoð frá SOS. Samtökin njóta aðstoðar staðaryfirvalda, kirkjunnar og fleiri aðila við að finna út hvaða barnafjölskyldur þurfa mest á hjálp að halda.

Öll barnaþorpin okkar í Chile hafa nóg af mat og drykkjarvatni.

Barnaþorpið í Bulnes varð verst úti í skjálftanum. Sex hús í þorpinu eru óíbúðarhæf.

Barnaþorpið í Bulnes varð verst úti í skjálftanum. Sex hús í þorpinu eru óíbúðarhæf.

 

Börnin í barnaþorpinu í Malleco sváfu í tjöldum eftir skjálftann af ótta við eftirskjálfta.

Börnin í barnaþorpinu í Malleco sváfu í tjöldum eftir skjálftann af ótta við eftirskjálfta.

 

Morgunverður undir berum himni í Bulnes eftir skjálftann.

Morgunverður undir berum himni í Bulnes eftir skjálftann.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina