Fréttir

Chile - jarðskjálfti 27.02.2010
Börnin sakaði ekki í jarðskjálftanum - en nú vofir yfir þeim ný ógn; þjófagengi.

Barnaþorpið í Concepcion komið með vatn og rafmagn

3.3.2010

Í gær tókst að koma rafstöð, eldsneyti, drykkjarvatni og matvælum til SOS Barnaþorpsins í Concepcion. Ekkert amar að börnunum.

Þrír hópar frá öðrum SOS Barnaþorpum í Chile lögðu af stað á mánudaginn með birgðir til barnaþorpsins í Concepcion. Allir komust þeir á áfangastað og hafa börnin nóg að bíta og brenna auk þess sem rafstöðin sér húsunum í barnaþorpinu fyrir rafmagni en rafmagnslaust hefur verið á svæðinu frá því skjálftinn reið yfir.

Eins og áður hefur komið fram var reynt að brjótast inn í barnaþorpið seint á sunnudagskvöldið. Þjófarnir hrökluðust burt og ekki hefur verið gerð önnur atlaga að þorpinu.

Starfsfólk SOS Barnaþorpanna á skjálftasvæðinu gerir nú allt sem í þeirra valdi stendur til að aðstoða hrjáða í nágrenni þorpanna með matvælum, drykkjarvatni og skjóli.

Því miður hafa okkur ekki enn borist neinar myndir frá barnaþorpinu í Concepcion eftir skjálftann.

Fjórtán SOS Barnaþorp eru í Chile og eiga 135 börn í þeim íslenska styrktarforeldra.

map-chile-en-HR1



Til baka, Senda grein, Prenta greinina