Fréttir
Tilraun til innbrots í barnaþorpið í Concepcion
Þrátt fyrir að enginn úr hópi barna og starfsfólks SOS Barnaþorpanna í Chile hafi slasast í jarðskjálftanum s.l. laugardag vofir nú ný ógn yfir barnaþorpinu í Concepcion; þjófagengi sem valsa um götur borgarinnar.
Í samtali við Jessicu Lange, forstöðukonu SOS Barnaþorpsins í Concepcion, kom fram að í fyrrinótt hafi verið reynt að brjótast inn í hús í barnaþorpinu. Þjófarnir komust ekki inn en ljóst er að hættan á gripdeildum er raunveruleg.
Á meðan skothljóð berast af götunum og þjófagengi valsa um hverfin munu SOS-mæðurnar halda börnunum innandyra og tryggja öryggi þeirra eftir bestu getu. Leitað hefur verið til lögreglunnar í Concepcion eftir vernd og er laganna vörðum vel kunnugt um barnaþorpið og þá starfsemi sem þar fer fram.
Í gær lögðu tveir hópar sjálfboðaliða af stað (frá sitthvorum staðnum) til Concepcion með vistir fyrir barnaþorpið en símasamband hefur ekki náðst við hópana eftir að þeir lögðu af stað til borgarinnar.
Verið er að undirbúa ferð þriðja hópsins til Concepcion.
Starfsfólk SOS Barnaþorpsins í Chaimávida (í um 20 mín. akstursfjarlægð frá Concepcion) er nú mjög á varðbergi þar sem fregnir hafa borist af gripdeildum á því svæði.
Alls eiga 135 börn í barnaþorpunum í Chile íslenska styrktarforeldra.
Frekari fréttir frá Chile verða birtar hér á vefsvæðinu, sem og á Facebook síðu SOS Barnaþorpanna þegar þær berast.

