Jarðskjálfti í Chile
Gríðarlega öflugur jarðskjálfti (8.8 á Richter) reið yfir Chile í morgun. 14 barnaþorp eru í landinu og erfiðlega hefur gengið að ná sambandi við þau. Þó er vitað að barnaþorpin í Santiago og Curicó urðu ekki fyrir neinu tjóni.
Þær fréttir að börnin í Curicó skuli vera óhult verða að teljast góðar þar sem þorpið er ekki langt frá upptökum skjálftans.
Þá vitum við skemmdir hafa orðið á landsskrifstofu SOS í Chile, en þær munu vera minniháttar.
Nú er allt kapp lagt á að ná sambandi við Bio Bio hérað sem virðist hafa orðið verst úti í skjálftanum en þar er SOS Barnaþorpið í Concepcion staðsett.

