Fréttir
Haítí: 126 börn flytja í barnaþorp
Nú, rúmum mánuði eftir að jarðskjálfti lagði líf Haítíbúa í rúst, er enn gríðarleg neyð í landinu og mörg börn þjást meira en orð fá lýst. Í gær fluttu 126 börn í SOS Barnaþorpið í Port-au-Prince*.
Börnin (62 stúlkur og 64 drengir) fá að búa í barnaþorpinu þar sem þau eiga ekki í önnur hús að venda. Hver SOS-móðir í þorpinu annast nú allt að 20 börn og hefur tvo fullorðna sér til aðstoðar.
Þessi 126 börn koma öll úr tjaldbúðum heimilislausra í Port-au-Prince en þar dvöldu þau við hörmulegar, jafnvel lífshættulegar aðstæður. Sum þeirra misstu foreldra sína í skjálftanum en önnur eiga foreldra á lífi sem ekki geta séð fyrir þeim.
Starfsfólk SOS hefur rekist á fjölda barna í búðunum sem þjáist af næringar- og vökvaskorti. Sum barnanna voru jafnvel nær dauða en lífi. Þó reynist stundum erfitt að sannfæra fullorðna íbúa tjaldbúðanna um að rétt sé að koma börnunum í öruggt skjól í barnaþorpinu, þar sem viðvera barna í búðunum eykur líkurnar á að stærri hjálparsamtök dreifi þar matvælum og vatni.
Það getur því verið hagur fólksins í tjaldbúðunum að halda fársjúkum börnum í búðunum, þó með því sé lífi barnanna ógnað.
Fjölskylduefling
Áður en skjálftinn reið yfir var Fjölskylduefling SOS með 16 starfsstöðvar á Haítí. Í dag eru þær 77 og fer fjölgandi. Þar fá tæplega 10.000 börn og fjölskyldur þeirra nauðsynlegustu hjálp frá degi til dags auk nauðsynlegrar ráðgjafar og aðstoðar svo fjölskyldurnar geti í nánustu framtíð séð um sig sjálfar og orðið óháðar hjálparsamtökum.
Hjálparsjóður SOS vegna Haítí: Reikningur: 0701–26–003116 - kt. 500289-2529
* Barnaþorpið er staðsett rétt utan við Port-au-Prince, nánar tiltekið í Santo hverfinu.

