Fréttir
Barnaföt til Haítí
SOS á Íslandi hafa nú í samstarfi við Haítískipið sent 74 kassa af barnafötum, -skóm og fleiri barnavörum til þurfandi á Haítí. Icelandair flutti farminn endurgjaldslaust úr landi.
Um er að ræða rúmlega hálft tonn af barnafötum og skóm auk pela, taubleyja og snuða. Varningnum höfðu sjálfboðaliðar á vegum Haítískipsins safnað í þeim tilgangi að koma honum til þurfandi á Haítí. Fötin voru notuð en í mjög góðu ásigkomulagi og annar varningur var ónotaður.
Forsaga málsins er sú að SOS Barnaþorpin á Haítí hjálpa nú illa stöddum barnafjölskyldum sem urðu illa úti í jarðskjálftanum í janúar. Samtökin sendu beiðni til systursamtaka sinna, m.a. til Íslands, eftir fötum fyrir börn á aldrinum 0-14 ára en mikil þörf er á slíku meðal skjólstæðinga Fjölskyldueflingar SOS á Haítí.
Um svipað leyti höfðu aðstandendur Haítískipsins samband við SOS Barnaþorpin og óskuðu eftir samstarfi við dreifingu hjálpargagna á Haítí. Voru barnafötin þá þegar flokkuð í kassa og vandlega merkt eftir kyni og aldri. Því lá beinast við að leita eftir samstarfi við Icelandair Cargo um að koma varningnum til Frankfurt og bauðst félagið til að flytja hann þangað endurgjaldslaust og fór hann með flugi í gær, sunnudag.
Frá Frankfurt verða hjálpargögnin svo send til Dóminíska lýðveldisins og svo ekið yfir landamærin til Haítí. Ljóst er að nokkur hundruð börn sem nú líða skort á Haítí munu spóka sig um í vönduðum fatnaði frá Íslandi áður en langt um líður.
SOS Barnaþorpin á Íslandi þakka Haítískipinu og Icelandair Cargo ánægjulegt samstarf og velvilja.
Meira um Haítí á Facebook síðu SOS.

