Fréttir

Börnin bjóða Angelinu Jolie velkomna í SOS Barnaþorpið
Börnin bjóða Angelinu Jolie velkomna í SOS Barnaþorpið

Angelina Jolie heimsækir SOS á Haítí

10.2.2010

Börnin í SOS Barnaþorpinu í Santo rétt utan við Port-au-Prince fengu góða heimsókn í gær þegar sjálf Angelina Jolie gladdi þau með nærveru sinni.

Sjá stutt myndband af móttökunni hér fyrir neðan.

Angelina kom til Haítí sem sendiherra Flótamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Hún óskaði sjálft eftir því að fá að heimsækja barnaþorpið í Santo en hún hafði áður heimsótt starfsstöðvar SOS í Tsjad og Jórdaníu. Í barnaþorpinu í Santo heimsótti hún tvö heimili sem hvort um sig hefur tekið við fjórum systkinum sem reynt var að koma ólöglega úr landi á dögunum.

Nokkur hundruð börn sem misstu foreldra sína eða urðu viðskila við þá í jarðskjálftanum búa nú tímabundið í barnaþorpinu á meðan reynt er að hafa uppi á nánum ættingjum þeirra.

Jordan/Pitt sjóðurinn hefur oftar en einu sinni gefið rausnarleg fjárframlög til SOS Barnaþorpanna.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina