Fréttir

Um 40.000 manns munu njóta stuðnings SOS á Haítí næstu vikur og mánuði
Um 40.000 manns munu njóta stuðnings SOS á Haítí næstu vikur og mánuði

Íslensk yfirvöld styrkja SOS á Haítí

9.2.2010

Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að veita SOS Barnaþorpunum tveggja milljóna króna styrk vegna neyðaraðstoðar í kjölfar jarðskjálftans 12. janúar sl.

Styrkurinn er hluti 15 milljóna króna framlags sem ríkisstjórn Íslands ákvað að veita til félagasamtaka sem sinna hjálparstarfi á Haítí. Einnig fengu Barnaheill, Rauði krossinn og Hjálparstarf kirkjunnar styrki.

Með neyðaraðstoð sinni fyrstu vikur og mánuði eftir skjálftann leggja SOS Barnaþorpin á Haítí höfuðáherslu á að:

  • Annast þau börn sem þegar voru á framfæri samtakanna þegar skjálftinn reið yfir auk þeirra barna sem virðast umkomulaus og fengið hafa skjól hjá samtökunum.
  • Hjálpa barnafjölskyldum í neyð að skipuleggja líf sitt á ný og styðja þær til sjálfbærni.

Alls munu um 40.000 manns njóta ofangreindrar neyðaraðstoðar SOS á Haítí.

Þá vinna samtökin nú að uppbyggingaráætlun á Haítí til næstu 10 – 12 ára með áherslu á:

  • Barnavernd (Tryggja framtíð barna í umsjá náinna ættingja sé þess nokkur kostur)
  • Húsnæði fyrir heimilislausa (Byggja heimili fyrir barnafjölskyldur sem misstu heimili sín)
  • Menntun barna (Byggja leik- og grunnskóla)
  • Heilbrigðismál (Koma upp heilsugæslustöðvum)
  • Menntun opinberra starfsmanna (Í málefnum og réttindum barna)

Allt uppbyggingarstarf verður unnið í nánu samstarfi við yfirvöld á Haítí.Salernisaðstöðu fyrir almenning komið upp í SOS Barnaþorpinu í Santo

Salernisaðstöðu fyrir almenning komið upp í SOS Barnaþorpinu í Santo



Til baka, Senda grein, Prenta greinina